Kirkjuritið - 01.01.1952, Side 35

Kirkjuritið - 01.01.1952, Side 35
ÞJÓÐFÉLAGSVANDAMÁLIN OG KIRKJAN 33 að fleiri og fleiri börn leiðast út á refilstigu og verða vandræðaböm. Vafasamt hlýtur þá að reynast, hvemig rætist úr unglingnum, hvaða braut hann gengur og síðan hinn þroskaði maður. — Hér hefir aðeins verið vikið lauslega að víðtæku þjóðfélagsvandamáli, sem þegar er orðið eitt af mestu vandamálum þessarar þjóðar. Loks vil ég aðeins drepa á vandamálin, er varða atvinnu og fjárhag. Um þau talar öll þjóðin. Þau mál koma við lífi sérhvers manns í þessu landi og því finnst mörgum mest til um þau. Vér Islendingar höfum öldum saman lif- að við fátækt og takmarkaða kostu. Á þessu varð skyndi- leg breyting. Þjóðin varð, vegna utanaðkomandi áhrifa að vísu, tiltölulega auðug í síðustu heimsstyrjöld og í stríðs- lok mátti heita, að vér værum með fullar hendur fjár. En auður er valtastur vina. Framfarahugurinn óx. Gjald- eyririnn eyddist á skömmum tíma. Mikið var keypt og margt nauðsynlegt í framfara- og menningarsókn þjóð- arinnar, ekki sízt vélar, tæki og skip. Miklu var líka sóað í gegndarleysi að því er virðist. Og auðurinn hvarf jafn- skjótt og oss hafði borizt hann í hendur. Þjóðin er aftur fátæk og á fárra kosta völ, en hefir um skeið lifað að nokkru á gjafafé. Svo er fjárhagnum komið, en hann hefir að sjálfsögðu bein áhrif á atvinnulífið og afkomu almenn- ings í landinu. En svo koma mennimir og gera illt verra. Verkföllin eru gleggst dæmi þess, og er þá skemmst að minnast sjómannadeilunnar síðustu, sem stóð mánuðum saman. Verkföll eru hættulegt vopn og geta reynzt þjóðar- hag alvarleg. Hins vegar verður að viðurkenna, að launa- stéttir þjóðfélagsins eiga oft réttláta kröfu á hækkuðum launum. Breytingar á launum og kaupsamningar milli laun- þega og vinnuveitenda em því bæði óhjákvæmilegir og sjálfsagðir. En þegar vinnudeilur standa vikum eða mán- uðum saman, fer málið að vandast. Og hvers vegna þarf svo að vera? Ástæðan hlýtur að vera skortur á vilja ann- ars hvors eða beggja aðila til að setja sig í spor hins, skortur á vilja til að meta af skilningi og þekkingu getu 3

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.