Kirkjuritið - 01.01.1952, Side 42

Kirkjuritið - 01.01.1952, Side 42
40 KIRKJURITIÐ 1947 helli í hæðunum 12 km suður frá Jeríkó og þar handritin. Beduínarnir fóru með handritin til Betlehem, og seldu kaupmönnum þau. Kaupmennimir, sem keyptu handritin, voru 3. Tveir seldu sín handrit til sýrlenzku kirkjunnar í Jerúsalem. Sá þriðji fór til háskólans í Jerú- salem og seldi sinn hluta þangað. Háskólinn í Jerúsalem fekk 6 handrit og stranga með handritaleifum. Hann fekk auk þess tvær leirkrukkur. — Sýrlenzka kirkjan setti sig í samband við Ameríkumenn, og þannig komst hennar hlutur í þeirra hendur. Það sem síðan hefur gerzt í málinu: 1949 var hellirinn rannsakaður. Þar fundust brot af leirkrukkum, sem hand- ritin höfðu verið geymd í. Þá fundust þar sneplar úr hand- ritunum. Höfðu Bedúínarnir verið svo harðhentir, er þeir brutu krukkumar og tóku handritin, að úr handritunum hafði molnazt. — Síðar sama ár var brotizt inn í hellinn á öðrum stað. Þar fundust fleiri leirbrot og ýmiss konar keramik. — Ræðumaður skaut því inn í, að handritin hefðu verið fleiri. Þau myndu koma fram síðar, hélt hann. Ýmislegt benti ótvírætt til þess. Sukenik prófessor í Jerúsalem hóf strax að rannsaka handritin, þá er hann hafði fengið þau í hendur. — Þrátt fyrir bardagana, sem þá stóðu yfir milli Gyðinga og Ar- aba, byrjaði hann að gefa handritin út á prenti og gera þau þannig aðgengileg vísindamönnum um allan heim. Aðeins sá galli er á, að skýringar Sukeniks eru á hebresku. — Hve erfitt Sukenik átti, er hann vann að þessum vís- indaiðkunum, má sjá af því, að sonur hans var drepinn í einni af loftárásum Araba á Jerúsalem. — Útgáfa Suk- eniks er strangvísindaleg, fullyrti dr. Edelmann. — Suk- enik hefir þegar gefið út eftirfarandi: 1) Sálma nokkura, sem lýsa baráttunni milli barna ljóssins og myrkursins. 2) Jes. 41—43. 3) Þá hefir Sukenik gefið út Jes. 40, en sá kafli er tekinn úr Jesaja handriti því hinu mikla, sem sýrlenzka kirkjan á. Sukenik hafði fengið það handrit í hendur um nokkurt skeið áður en Ameríkumenn vissu

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.