Kirkjuritið - 01.01.1952, Side 48
46
KIRKJURITIÐ
ið föstum. — En ástæðan hafi síður en svo verið sú að apa
eftir þeim rithátt Kóransins eða gera fræðistarf Kórans-
fræðinganna að fyrirmynd sinni. — Þvert á móti hafi
starf Massoringa verið sjálfsvöm Gyðinga gegn Aröbum
og arabiskum áhrifum. — Til að vernda einkenni hebreska
frummálsins og forða að því yrði brenglað og aflagað með
áhrifum frá arabiskunni, grófu Massoringamir upp allt,
sem vitað var um málið, framburð þess og rithátt. Hin
fínustu blæbrigði voru dregin fram og þeim gefið tákn
til þess að tryggja, að þau varðveittust og gengju í arf
til síðari kynslóða. — Taldi ræðumaður, að hinn nýi hand-
ritafundur renndi sterkum stoðum undir skoðun sína, en
veitti skoðun Kahles banahöggið.
Þetta var í aðalatriðunum innihald fyrirlestrarins eftir
því sem ég gat náð því niður. Auðvitað hefir margt fallið
niður, og lauslega er á margt drepið, sem ræðumaðurinn
fór um miklu fleiri orðum.
Knúið á dyr Flosa.
Húnaþing horfði mót
harðinda kafla.
Flóinn, sem hafði hót
hjálpað með afla,
brást, hvorki bærði þá
brim eða gjálfur,
íshella ein að sjá,
ekki hann sjálfur.
Bangsi í byggðir sér
bregður af jökum