Kirkjuritið - 01.01.1952, Síða 52

Kirkjuritið - 01.01.1952, Síða 52
50 KIRKJURITIÐ þeir mættu með einhverjum hætti finna öruggan lend- ingarstað, svo að lífi þeirra yrði borgið, og þeir unnu jafn- framt þau heit, að í þakklætis skyni fyrir handleiðslu Guðs skyldu þeir reisa guðshús á þeim stað, er þeir kæmu að landi, svo að um aldur og ævi yrði þar flutt lofgjörð til Guðs. — Hér eru þáttaskilin í sögunni. Tjaldið er dreg- ið frá nýjum þætti, og vald himinsins kemur fram á sjón- arsviðið. Hafrótið, myrkrið og dauðinn færast í baksýn. Við erum stödd í hinu mikla þjóðleikhúsi Islandssögunnar sjálfrar, þar sem stríð fólksins og ljósið af himnum mæt- ast. Oft var það svo, að öðrum megin var bylgjan björt, þó að lífsháskinn sjálfur lægi í öldudal hennar. önnur hlið hennar vissi að birtu himinsins. Hvað var það nú, sem gerðist, þegar sjómennirnir höfðu snúið sér í bæn til Guðs? Allt í einu sáu þeir land, og þá var um tvennt að ræða: Annaðhvort mundu þeir farast í briminu eða finna lendingarstað. Það var hánótt, og Ijós byggðarinnar höfðu verið slökkt. Þó sáu þeir eitt ljós. En það var nóg. Eitt ljós er sjóhröktum manni nóg, ef það lýsir honum í höfn, og það er meira virði en hundrað lampar í veizlusal, þar sem dauðar sálir sitja að borðum og dreymir, að þær lifi. Sjómennirnir stefndu að ströndinni, þar sem ljósið sást, og þar varð fyrir þeim lítil vík, þar sem þeir gátu lent heilu og höldnu. En ljósið, sem þeir héldu að væri í ein- hverjum baðstofuglugga, var ekki frá neinni mannabyggð. Það átti heima á öðru tilverusviði. Þeir sáu í flæðarmál- inu bjarta og himneska veru. Það var hún, sem hafði lýst þeim. En áður en þá varði, var hún horfin. Engillinn hafði lokið hlutverki sínu. Staðinn, þar sem hann stóð og bát- urinn lenti, nefndu sjómennirnir Engilsvík, og svo heitir vík þessi enn í dag. Þeir efndu heit sitt og létu reisa kirkju örskammt þaðan, — kirkjuna á Strönd í Selvogi. Þar hafa fjölmargar guðsþjónustur verið haldnar síðan. Þar hefir Guð verið ákallaður hátt og í hljóði um aldir. Mörgum hefir fundizt, er þeir komu á þann stað, sem þar væri enn í dag lendingarstaður tveggja heima.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.