Kirkjuritið - 01.01.1952, Síða 57

Kirkjuritið - 01.01.1952, Síða 57
Játningarrit íslenzku kirkjunnar. Dr. Einar Arnórsson hefir skrifað allmikla ritgerð um þetta efni, sem gefin hefir verið út í ritsafninu: Islenzk fræði, en þar eru einkum birt erindi, sem flutt hafa ver- ið og rædd á rannsóknaræfingum í Háskóla Islands og Þykja færa einhverjar nýjar eða markverðar athuganir úm íslenzkar bókmenntir, sögu og tungu. Tekur höfund- úrinn sér fyrir hendur að athuga, hvaða játningarrit verða úð telja lagalegan grimdvöll evangelisk-lúterskrar kirkju ú Islandi og hvaða gildi trúarrit þessi hafi. I fyrsta lagi gefur hann yfirlit yfir hinar fomu trúar- Játningar kristinnar kirkju. Því næst ræðir hann um, hvaða játningarrit giltu hér í kaþólskum sið og eftir siða- skipti og loks ræðir hann um hin spámannlegu og postul- le&u rit í sambandi við játningarritin, og að hverju leyti játningarrit kirkjunnar séu bindandi fyrir kennimanns- starf íslenzkra presta. Öll er ritgerðin skilmerkilega og fræðimannlega skrif- úð, svo sem vænta mátti af hinum ágæta lögfræðingi, °g þar sem hann er okkar helzti kirkjuréttarfræðingur, t*á eru niðurstöður hans mjög athyglisverðar, hvernig sem vér annars kunnum að líta á þær. Vel treysti eg höfundi til þess að dæma um það rétt, enda sýnist mér röksemdaleiðsla hans vera ljós fyrir því, að hér hafi verið lögboðin kaþólsk trú til siðaskipta, en síðan hafi kirkjuskipun Kristjáns þriðja verið lögtekin og þar með sá skilningur, að trúarkenningarnar skyldu lögbindast við hin spámannlegu og postullegu rit, trúar-

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.