Kirkjuritið - 01.01.1952, Síða 69
Innlendar fréttir.
Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða
var haldinn á Þingeyri dagana 6. og 7. sept. s.l. Formaður,
séra Jón Kr. tsfeld, setti fundinn í kirkjunni, las ritningar-
°rð og bað bænar, en fundarmenn sungu sálm á undan og eftir.
Síðan var gengið til fundar í fundasal Kaupfélags Dýrfirðinga.
Formaður minntist í fundarbyrjun nýlátinnar eiginkonu séra
Jónmundar Halldórssonar, Guðrúnar Jónsdóttur. Risu fundar-
menn úr sætum og vottuðu hinni látnu virðingu, en starfs-
bróður sínum samúð sína. Þá gat formaður þess helzta, sem
fél. hafði gert á árinu. Síðan flutti séra Stefán Eggertsson,
Þingeyri, framsögu í aðalmáli fundarins: Kirkjan og sértrúar-
flokkamir. Umræður urðu miklar um það báða fundardagana.
Að kvöldi fyrri fundardagsins fór fram guðsþjónusta í kirkj-
u«ni. Séra Einar Sturlaugsson prófastur, Patreksfirði, þjónaði
fyrir altari á undan prédikun. Séra Gísli H. Kolbeins, Sauð-
fauksdal, prédikaði, en séra Stefán Eggertsson þjónaði fyrir
nltari eftir prédikun og tók prestana og fleiri til altaris. —
Sóknamefnd Þingeyrar bauð fundarmönnum til kvöldverðar í
samkomuhúsi staðarins fyrri fundardaginn. Boðinu stjómaði
Matthías Guðmundsson vélsmiður, formaður sóknamefndar.
■P'lutti hann athyglisvert ávarp, en séra Jónmundur Halldórs-
s°n svaraði fyrir hönd gesta. Var hóf þetta hið ánægjulegasta
°g sóknamefnd til sóma.
Auk aðalmáls fundarins var síðari fundardaginn rætt um hin
nýju prestakallaskipunarlög. Framsögu í þvi máli hafði séra
Jón Kr. ísfeld. í því máli var samþykkt svohljóðandi tillaga:
»Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða, haldinn á Þingeyri 6.—
sept. 1951, mótmælir eindregið fækkim prestakalla í landinu,
en telur hins vegar tilfærslu eðlilega og fjölgun prestakalla
uauðsynlega, þar sem fólksfjöldinn er mestur.“ Þá var rætt
málið: Nafngiftir barna. Framsögu hafði séra Einar Sturlaugs-
s°n. Samþykkt var eftirfarandi tillaga: „Að gefnum tilefnum
leggur aðalfundur Prestafélags Vestfjarða, haldinn á Þingeyri
sePt. 1951, áherzlu á, að kirkjuyfirvöld landsins hafi fullt
eftirlit með því, að í sambandi við nafngiftir barna sé farið
eftir gildandi lögum um mannanöfn". — Þá fóru fram venju-