Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1955, Síða 5

Kirkjuritið - 01.06.1955, Síða 5
ÁSMUNDUR GUÐMUNDSSON: Sumarkveðja til œsku íslands. Sumarið er gengið í garð. Einn af mestu hátíðisdögum okkar fslendinga runninn upp, sumardagurinn fyrsti, dag- Ur, sem kynslóðirnar á undan okkur hafa þráð hver af annarri og fagnað af öllu hjarta. Vorið komið um loft og lög og land, birta og ylur. Blær þess líður um vanga. Og vorboðinn ljúfi er kominn handan yfir hafið. „Dýrðin, dýrðin“ hljómar um strendur og sumardali. Fannatindar roðna og glúpna. Snjó og ísa leysir. Helfjötrar vetrarins hrökkva, og nýr svipur færist yfir, hvert sem litið er. >>Fuglar syngja. Straumar stíga sporið, meðan jörðin ómar: Vorið, vorið“. Varpinn grænkar. Trjágreinin verður mjúk og tekur að skjóta út frjóöngum. Fyrstu vorblómin opna bikara sína og horfa fagnandi við ljósinu. Náttúran endur- fæðist, verður ung og fögur eins og hinn fyrsta dag. Við sjáum undur upprisu hennar við veldi hækkandi sólar, hfgjafans mikla. Hvarvetna sýna vormerkin og sanna, að hfið ber hærra hlut. Það er sigur og guðleg náð. Hátíð bossins bjarta — sumarið — er gengin inn. Heilsum því öll með djúpri þökk til Guðs, er gaf. En fegursta, yndislegasta vorið eruð þið, æskan. Ykkur ei’U gefin dýrlegustu fyrirheit sumarsins. Og ykkur brosir hfið bjartast úr augum. Ég flyt ykkur nú þessa kveðju Jesú Krists: „Þér eruð Ijós heimsins“ og bið ykkur hug- ^eiða, hvílík hún er. — Miðað við frásagnir Matteusar- guðspjalls og Lúkasar, virðist Jesús hafa verið staddur á grasflöt uppi í fjallshlið, er hann mælti þessi orð. Ef til vih hefir það verið um vor í fegursta gróandanum við blómaangan og fuglasöng. Mikill mannfjöldi stendur fyrir framan hann eða hvílir í grasinu. Næstir lærisveinar

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.