Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1955, Blaðsíða 7

Kirkjuritið - 01.06.1955, Blaðsíða 7
SUMARKVEÐJA TIL ÆSKU ÍSLANDS 245 dug. Verið ljóssins börn í verki og sannleika, synir og dætur sumarsins bjarta. Takið stefnu með hækkandi sól. Áfram. Hærra. Enn segir Kristur ykkur tvær líkingar: „Borg, sem stendur uppi á fjalli, fær ekki dulizt. Ekki kveikja menn heldur ljós og setja það undir mæli- ker, heldur á ljósastikuna; og þá lýsir það öllum, sem eru í húsinu.“ Borgin á hæðinni í skóglitlu landi hylst hvorki af trjám né öðru. Hún gnæfir yfir, svo að allir sjá hana langt að. Útlit hennar fær ekki dulizt. Og þegar kveikt hefir verið ljós á kveiknum í olíukúpunni litlu, þá er ekki hvolft yfir hana keri, heldur henni lyft upp á ljósastik- una, svo að ljósið lýsi öllum, sem inni eru. Ykkur ber vissulega hátt, æsku okkar lands. Við hoi'f- um til ykkar. Játið hiklaust kristna trú ykkar. Gangið djarflega fram til varnar því, að nokkurt djúp geti myndazt milli kristni °g æsku lands okkar. Ekkert ungmenni má villast burt frá kirkjunni. Þau verða. öll að sjá hana, svo að þau megi rata heim. Kristur fagnar komu ykkar í hús sitt, °g hann þráir ykkur einnig að borði sínu. Þannig skyldi hvert fermingarbarn halda árlega afmæli fermingar sinn- ar, uppi við altarið við hlið foreldra og annarra ástvina. Göfgin skuldbindur. Þið eigið á hverri stund að vera viðbúin til góðs, aldrei til ills. Aldir eru liðnar síðan sú hugsjón var borin fram, að hér á fslandi mætti rísa skóli ungra aðalsmanna, er berð- Ust með vopnum andans fyrir heill þess og frelsi. Ég vildi °ska, að hún rættist nú í lífi og starfi íslenzkra æsku- manna, er helguðu íslandi allt, og breyttu eftir einhverj- Um fegurstu orðunum, sem ég hefi nokkru sinni séð rist a nddaraskjöld: Ekki í myrkrunum. Ljósið á ijósastikuna, svo að það lýsi öllum í húsinu. Líf ykkar og starf skíni eins og ljós yfir öllu landi °kkar.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.