Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1955, Blaðsíða 46

Kirkjuritið - 01.06.1955, Blaðsíða 46
284 KIRKJURITH) Skotar eru kirkjuræknari en flestar aðrar þjóðir, og helgi sunnudagsins meiri þar en annars staðar. Þá eru allir skemmti- staðir lokaðir, svo sem kvikmyndahús, leikhús og dansstaðir. Þegar klukkan að ganga 11 á sunnudagsmorgnana fara kirkju- klukkurnar að kalla fólk til tíða. í Edinborg eru um 70 kirkjur, og er hátíðlegt að hlusta á samhljóm þeirra, enda hlýða margir kalli þeirra. í flestum kirkjum eru tvær messur á dag, aftan- söngur auk árdegisguðsþjónustu. Þegar til Bretlands kom, sannfærðist ég um það, sem mig hafði grunað áður, að kristindómur og kirkja hefir mjög mikil áhrif á líf og breytni manna þar í landi. Þess vegna hafði ég mikinn hug á að kynnast þar kristinfræðiskennslu í skólum, því að þar hlaut að vera margt til fyrirmyndar. Séra Edwin Towill, prestur við Newington og St. Leonards kirkju í Edinborg, greiddi manna bezt fyrir því, að mér auðn- aðist að kynnast þeim málum nokkuð. Séra Towill reyndist mér á allan hátt mjög vel, og sjaldan hefi ég kynnzt manni, sem mér hefir geðjast betur að. Ég var nokkrum sinnum við messu hjá honum, og auk þess fékk ég að kynnast mjög fjöl- breyttu starfi hans í þágu barna og ungs fólks í söfnuði hans. Ég undraðist fórnfýsi hans og vinnuþrek. Því auk þess sem hann messaði vanalega tvisvar hvem sunnudag og leiðbeindi og kenndi við sunnudagaskólann og hafði mörgu öðru að sinna í stórum söfnuði, hafði hann eftirlit með kristinfræðiskennslu í skólum í Edinborg. Einnig flutti hann fyrirlestra við kvöld- skóla, sem kirkjan starfrækti fyrir kristinfræðiskennara. Fyrii' atbeina hans fékk ég nokkrum sinnum að hlýða á kennslu i þeim ágæta skóla. Séra E. Towill útvegaði mér leyfi til að heimsækja nokkra barna- og unglingaskóla og kynnast þar kristinfræðiskennslu. Stundum kom hann með mér, en stundum hafði hann ekki tíma til þess, svo að ég fór einn. Skóladagurinn byrjar ávallt með stuttri guðsþjónustu, sem tekur nál. 30 mín. Auk þess eru svo tvær kennslustundir í viku í kristnum fræðum, 40—45 mín. hvor. Mig langar til að segja frá morgunguðsþjónustu, sem eg hlýddi á í Dr. Bell’s School í Edinborg. Það var 14. október s. • kl. 9 f. h., sem ég kom þangað. Skólahúsið er gamalt og ekki nýtízkulegt, en heimilislegt og hlýlegt þar innan dyra. Mér var

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.