Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1955, Blaðsíða 45

Kirkjuritið - 01.06.1955, Blaðsíða 45
í brezkum skólum. IMokkur brot úr sendibréfi. Ég hafði mikla ánægju af Bretlandsferðinni. Og það hefir yljað mér marga dimma daga síðan, að hugsa um bjarta og hlýja sumardaga í Skotlandi og Englandi, því að eiginlega fannst mér alltaf sumar þar, þó að komið væri fram í nóvem- ber, þegar ég fór þaðan. Þó er það ekki veðráttan, sem er mér hugstæðust, heldur fólkið. Allir, sem ég þurfti eitthvað að Éita til, reyndust mér svo framúrskarandi vel. Vonum betur, meira að segja, þó að ég hefði miklar mætur á Bretum áður. Yfirfræðslumálastjóri Skotlands reyndist mér sérstaklega vel, °g sama er að segja um þá 8 námsstjóra, sem hann fékk mér til fylgdar víðs vegar um landið. Alls staðar var mér líka vel tekið í skólunum. Þá kynntist ég presti einum í Edinborg, sem mér geðjaðist sérstaklega vel að. Hann heitir Edwin Towill. Honum á ég það mest að þakka, að mér auðnaðist að kynnast Uokkuð kristinfræðiskennslu í skólum þar í borginni. Fræðslu- málastjómin hefir ekki eftirlit með þeirri kennslu, svo að meðan ég ferðaðist um með námsstjórunum, átti ég ekki kost á að kynnast henni. Námsskrá í kristnum fræðum fyrir barna og Ur»glingaskóla er samin af nefnd, sem skipuð er fulltrúum frá °úum kirkjudeildum Skotlands (nema katólsku kirkjunni) og fulltrúum frá kennarastéttinni. Séra E. Towill var starfsmaður Þessarar nefndar og hafði með höndum eftirlit kristinfræðis- kennslu í Edinborg. Ég hefi lengi haft miklar mætur á Bretum og trúað því, að þeir væru mesta menningarþjóð heimsins, þegar alls er gætt. Sennilega standa samt sumar Norðurlandaþjóðirnar þeim jafn- fsetis á mörgum sviðum. Eðlilegast sýnist því, að íslendingar leituðu menningaráhrifa þangað, að svo miklu leyti sem þeirra Gr leitað út fyrir landsteinana. Bretar og Norðurlandaþjóðimar oru líka skyldastar okkur og standa okkur næst að allrí menn- ir>gu.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.