Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1955, Blaðsíða 8

Kirkjuritið - 01.06.1955, Blaðsíða 8
246 KIRKJURITIÐ — Að lokum mælir Kristur til ykkar: „Þannig lýsi ljós yðar mönnunum, til þess að þeir sjái góðverk yðar og vegsami föður yðar, sem er í himnun- um.“ Það er vel, að þið leggið áherzlu á það að vinna gott verk á degi hverjum, en andvarpið hrelldir að kvöldi, ef það bregzt, eins og Titus forðum: Þessum degi hefi ég glatað. Máttur góðra verka er vissulega mikill. Ég hygg, að án þeirra verði hinni raunsýnu æsku lands vors ekki boðaður kristindómur — að án þeirra taki hún enga prédikun gilda. Ef verkin styðja ekki, er henni boðunin gagnslaus, enda er trúin dauð án verkanna. Það er hollt að fara að dæmi Þorláks hins helga: Að kostgæfa meir að gjöra sem bezt en segja sem flest. Já, látið verkin tala, góð verk. Og þó getur einnig á þessu sviði legið hætta í leyni. Ef einhverjum taka að miklast sjálfum eigin góðverk, þá er voðinn vís. Kristur varar einnig við því í Fjallræðunni: „Gætið yðar, að fremja ekki réttlæti yðar fyrir mönn- unum til þess að verða séðir af þeim. Vinstri hönd þín viti ekki, hvað hægri hönd þín gjörir.“ Og hann dregur upp mynd af Faríseanum í musterinu, sem setur sig í bænarstellingar og segir: „Guð, ég þakka þér, að ég er ekki eins og aðrir menn: ræningjar, ranglætismenn, hór- karlar eða þá eins og þessi tollheimtumaður. Ég fasta tvisvar í viku og geld tíund af öllu, sem ég eignast." Þessa kenning Krists hefir ef til vill enginn skilið betui’ né útlistað en rússneski spekingurinn og skáldið Leo Tol- stoj. Hann lýsir því í bók sinni Upprisu, hvernig aðalmaður sögunnar festir göfugt áform: Augu hans fylltust tárum. Og þau tár voru bæði góð og vond. Góð af því, að ásetn- ingur hans var fagur, en vond af því, að hann komst við af göfgi sjálfs sín. Nei, góðverk mannanna, runnin af hreinum hvötum, eru í dýpstum skilningi af guðlegum uppruna. Fyrir þvi

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.