Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1955, Qupperneq 38

Kirkjuritið - 01.06.1955, Qupperneq 38
276 KIRKJURITIÐ 2 mánaöa íyrirbúnaö, og eg þarf bæði aö yrkja og skrifa — og biðja. Þinn elskandi Matthías. Reykjavík, 6. maí 1874. (Frampart bréfsins vantar.) Fyrirgefðu elskulegi, háttvirti, geniali og voldugi vinur! aö eg geri mig svona heimakominn hátt og lágt, skyggnandisk inn í hverja kyrnu og talandisk allt, sem eg meina. Eg er nefnilega djarfur maður og hreinn í lund og hleypidómalítill, en með ótal smáfleiðrum og flumbrum á sál og líkama, en sem þessu bréfi kemur ekki við. Já, úr því minn hjartans vinur er nú farinn, þá tek eg hér með það ráð að reyna þig, vin hans, og skemmta mér við þína sál. Við Gunnar hefir mér líkað betur en nokkurn annan minn samferðamann á lífsins línu, og vorum við þó ekki ætíð einnar skoðunar. En hans kærleiki gerði hann allan að guðdómlegum sannleika, og flestar hans skoðanir. Gunnar var upp á vissan máta kras-orthodox, en hans orthodoxía var líf og sannleiki (eins og raunar hjá öll- um sönnum guðsmönnum) í hugsun, orði og verki, fyrir þann eld Jesú Krists anda, sem lifði í hans hjarta og andaði í öllu hans athæfi. Þess vegna var séra Gunnar einn hinn merkileg- asti maður, sem eg hefi þekkt — þrátt fyrir veikleika sinn, sem þeir er ekki þekktu hans gimstein (þ. e. kærleika hans) kölluðu draum- og feberóra, eða hégóma blandinn enthúsiasma o. s. frv. Nú ekki meira hér um, og nú út í helvíti, nefnilega þessa gömlu skeiðmeri skrattans, sem kóngurinn kallar Póliticam- Eg skrifa Eggerti: Bréf ykkar kom okkur mjög á óvart. Reynd- ar könnuðumst við vel við, að það var klaufaskapur og hor- tittur að setja hátíð vora 2. ágúst. En úr þessu er verra, þótt því væri reynt að breyta, því að: 1) hlýtur guðsþjónusta um land allt að ganga á undan hinu verzlega hátíðarhaldi. Er ekki svo? Og 2) veitir ekkert af tímanum til 2. ágústs að undirbúa sig og sameina hugi og hjörtu þessa marg-borneraða og fíö1' skipta þjóðfélags vors, búa til tjöldin og fá utanlands frá föng’ Og 3) er ekki lengur tími til að auglýsa á ný utanlands þessa ykkar breytingu, þar hér er ekki nema um eina póstskipsfer

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.