Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1955, Blaðsíða 41

Kirkjuritið - 01.06.1955, Blaðsíða 41
Sumarskólinn að Löngumýri. I fyrra sumar var rekinn sumarskóli á vegum húsmæöra- skólans að Löngumýri, að frumkvæði Ingibjargar Jóhannsdótt- ur skólastjóra. Þótti hann gefa svo góða raun, að ákveðið hefir Verið að halda því starfi áfram, sem þá var byrjað á, reyndar rneð lítið eitt breyttu fyrirkomulagi. Verður nú námstímanum skipt í þrjú tveggja vikna nám- skeið, til þess að hægt sé að flokka námsmeyjar eftir aldri. Verður námskeiðunum skipað sem hér segir: I. 25. júní — 8. júlí, 12—14 ára. II. 9. júlí — 22. júlí, 15—25 ára. III. 23. júlí — 6. ágúst, 25 ára og eldri. MeÖ starfi sumarskólans nú gefst ungum stúlkum jafnt og eldri konum tækifæri til þess að verja sumarleyfi sínu á hollan °8 heilbrigðan hátt, þar sem saman fer hvíld og hressing ásamt fræðslu. Kennsla verður í kristnum fræðum, bókmenntum, trjárækt, gfasasöfnun, matreiðslu, þjóðdönsum og íþróttum. Útisundlaug er rétt hjá staðnum, og farið verður í ferðalög til hinna mörgu sögustaða í nágrenninu. Fastir kennarar verða: Ingibjörg Jóhannsdóttir skólastjóri, Asgeir Ingibergsson stud. theol., Ásdís Karlsdóttir íþróttakenn- ari» Guðrún Þorsteinsdóttir söngkennari, Gerður Jóhannsdóttir °g Rósa Stefánsdóttir matreiðslukennarar. Eins og áður er sagt, gafst þessi tilraun svo vel í fyrra, að °hætt er að fullyrða, að aðsókn muni verða engu síðri í sumar Ga þá. Nánari vitneskju varðandi sumarskólann gefur Ingibjörg Jó- hannsdóttir skólastjóri, Löngumýri, skrifstofa Aðalsteins Eiríks- s°nar námstjóra, sími 82244, Reykjavík, og Ásgeir Ingibergsson stud. theol., Reykjavík, sími 82862.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.