Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1955, Qupperneq 17

Kirkjuritið - 01.06.1955, Qupperneq 17
KIRKJRUNAR í VESTMANNAEYJUM 255 sem ekki var notað hér, var sent til Bessastaða. Reikningur yfir kirkjubygginguna er frá 1781. (Lovsaml. for Isl. IV. 592 —93). Með því að kostnaðarreikningur við bygginguna er frá 1781, þá er mjög sennilegt, að byggingunni hafi verið lokið árið 1780, og byggingin því staðið yfir í 6 ár, frá 1774—1780. Trégrindur voru umhverfis kirkjuna, sem kostuðu 107 ríkis- dali 52 skildinga (Lovsaml. for Isl. IV. 592—93). Útlit kirkju þessarar var í upphafi allt annað en nú. Hún var turnlaus, og klukkurnar því í klukknagrindum á flötinni vestur af kirkjunni, sneitt var af þakburstunum, gluggarnir ^iinni, kórdyr norðan megin undir austasta glugganum og for- kirkja engin. Einhver breyting eða viðgerð mun hafa farið fram á kirkjunni um 1840, en aðalbreytingin á henni, að utan °g innan, fór fram á dögum Andreas August Kohl, sem hér var sýslumaður frá 1853—60. Ég fer þar eftir því, sem elztu rnenn hér, skömmu eftir aldamótin, skýrðu mér frá, og sem séð höfðu kirkjuna áður en breyting sú var framkvæmd, sem Kohl lét gera. Kohl lét rífa timburklæðningu þá, sem Abel sýslumaður (hann var sýslumaður hér frá 1821—1851) hafði látið klæða austurgafl kirkjunnar með, til hlífðar gegn regni °g annarri úrkomu. Það mun nýlunda, að klæða útvegg úr steini með timbri. Turn lét hann setja á kirkjuna og flytja Þangað klukkurnar. Ræðustólinn, sem stóð þar, sem skírnarfonturinn er nú, flutti hann yfir altarið, og mun slíkt fátítt hér á landi. Skírnar- fontinn setti hann þar, sem ræðustóllinn stóð, en ræðustólinn flutti hann niður í þinghús. Man ég eftir honum þar, innst í fundarsalnum, norðan megin. Ég man ekki eftir að nokkur stigi þar í pontuna, en gaman höfðum við drengir af því, að nStíga þar í stólinn“, ef tækifæri gafst til þess. Hvað um hann varð, veit ég ekki, hann hefir sennilega verið rifinn til eldi- viðar. Skilrúmið milli kórs og kirkju lét hann rífa, en sú girð- ing var fágæt, einkum að því leyti, að skilrúm þetta var gert roeðal annars af útskornum myndum af postulunum tólf, sex til hvorrar handar, þegar inn í kórinn var gengið. Um þessar Postulastyttur veit ég það síðast, að þeir voru vistaðir á haust- mannaloftinu, þar sem hljóðfærið er nú, og líklega hafa þeir að síðustu verið á bál bornir. Postulamyndir þessar skar út Ámundi Sigurðsson, trésmiður á Tjörnum, Vestur-Eyjafjöllum

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.