Kirkjuritið - 01.06.1955, Side 18
256
KIRKJURITIÐ
í Rangárvallasýslu. Kohl lét fjarlægja stúkur þær, sem voru
beggja megin í kirkjunni, sem ætlaðar voru embættismönnum
hér, kaupmönnum, verzlunarstjórum og skipstjórum. — Svalir
voru gerðar beggja megin og fyrir vesturenda. Þær náðu jafn-
langt inn eftir kirkjunni og nú, en voru þá miklu mjórri, aðeins
ein bekkjaröð. Bekkir voru settir á haustmannaloftið, en áður
voru þar engin sæti. Einnig var bekkjum komið fyrir á efsta-
loftinu, en það loft var áður notað til geymslu ýmiss konar.
Næsta viðgerð, sem nokkuð kvað að, fór fram árið 1903, og
stóð Magnús ísleifsson, trésmíðameistari, fyrir þeirri viðgerð.
Skal hér drepið á hið helzta. Þá var látið nýtt járnþak á kirkj-
una og klætt með blýþynnum umhverfis turninn, því að þar
var þá kominn að leki og tekið að fúna. Gluggarnir voru stækk-
aðir niður á við, kórdyrnar, sem voru undir austasta glugg-
anum norðan megin, voru teknar af, og forkirkja úr timbri
byggð, en hún var engin áður. Hefði eflaust farið betur á því,
að forkirkjan hefði verið gerð af steini, eins og kirkjan. Að
innanverðu var altarið og prédikunarstóllinn gert upp að nýju,
látið nýtt gólf í kórinn í stað hins gamla, sem orðið var slitið
og fúið, og skýldi fjölda músa, sem þar höfðust við. Hvelfing-
unni, sem áður var blámáluð með gylltum stjörnum yfir kórn-
um, var nú breytt í það horf, sem hún nú ber. Svalirnar voru
færðar fram, breikkaðar um helming, svo að nú eru bekkjaraðir
tvær, en áður var aðeins ein bekkjaröð, og söngpallurinn færður
fram til muna. Við þessa aðgerð á kirkjunni sást, er gluggum
var breytt, hvernig veggir hennar eru gerðir. Veggirnir eru
125 sentimetrar á þykkt eða 2 álnir og tvíhlaðnir. Ytri hleðslan
er úr höggnu hrautgrýti, og vönduð steinsmíði, en innri hleðsl-
an er hlaðin upp úr óhöggnu grjóti, en milli ytri og innri
hleðslu er fyllt upp með grjóti og kalki; síðan kalkhúðað utan
og innan. Bogarnir yfir gluggum og dyrum gerðir úr tígul-
steini. Tréð í dyraumbúnaðinum er 9><9 þumlungar á breidd
og þykkt.
Stafnar kirkjunnar eru nokkru þynnri, en eins gerðir og
veggirnir.
Flestir telja, að smíði kirkjunnar hafi verið lokið 1780 og
því staðið yfir í 6 ár, en hvenær farið var að nota þessa kirkju
og sú gamla í kirkjugarðinum rifin, er nokkrum vafa undir-
orpið. Þó geta eflaust allir orðið sammála um það, að ekki hefir