Kirkjuritið - 01.06.1955, Side 33
TVÖ BRÉF FRÁ MATTHÍASI
271
Fyrra bréfið er skrifað til Eggerts Gunnarssonar, bróður
Tryggva Gunnarssonar, hins alkunna athafnamanns, og Gunn-
ars prófasts á Svalbarði, sem um getur í bréfinu. Voru þeir
synir séra Gunnars Gunnarssonar í Laufási og konu hans, Jó-
hönnu Kristjönu Gunnlaugsdóttur sýslumanns Briem á Grund
í Eyjafirði, en hún giftist seinna Þorsteini Pálssyni presti á
Hálsi, sem andaðist 27. júní 1873. Mun Eggert hafa beðið séra
Matthías að yrkja eftirmæli eftir séra Þorstein stjúpföður sinn,
°g víkur hann að því.
Eggert Gunnarsson var um margra hluta sakir hinn merki-
legasti maður, eins og þeir bræður allir, eldheitur hugsjóna-
^iaður og barðist fyrir mörgum framfaramálum.. Hann fylkti
sér við hlið Jóns Sigurðssonar í stjórnmálum og ferðaðist fyrir
hann víða um land til að koma fótum undir Þjóðvinafélagið
°g safnaði til þess fé miklu. Var hann um þessar mundir kos-
hin á þing.
Um það leyti, sem bréfið er skrifað, var Eggert á stöðugri
ferð og flugi norðan lands og hafði fundi víða með mönnum
til að ræða um undirbúning þjóðhátíðarinnar. Hélt hann meðal
annars fund á Ljósavatni dagana 24. og 25. febrúar og á Akur-
eyri 3. marz 1874 til að ræða um hátíðahöldin, og var það
Hkjandi skoðun á þessum fundum, að þjóðhátíðina bæri að
halda um land allt á þingmaríumessu hinn 2. júlí, sem var hinn
forni samkomudagur Alþingis, en ekki 2. ágúst, eins og hallazt
var að fyrir sunnan. Hafði biskup gefið út þá tilskipun í sam-
ræmi við fyrirmæli kirkjustjórnarinnar dönsku, að prestar
tandsins skyldu minnast þúsund ára byggðar landsins sunnu-
hagana í ágúst, og drepur Matthías á þetta í bréfunum. En
Horðlendingar vildu, að aðalhátíðahöldin færu fram á Þing-
völlum áðurnefndan dag, en í héruðunum á hinum fornu þing-
stöðum. Til að fá þessu framgengt, voru á Akureyri kosnir í
nefnd í einu hljóði: Einar Ásmundsson, Nesi, séra Arnljótur
Ólafsson, Bægisá, og Eggert Gunnarsson, en í nefndina var
síðar bætt: Jóni alþingismanni á Gautlöndum og séra Birni
Halldórssyni í Laufási. Skrifuðu þeir síðan öllum Þjóðvina-
félagsmönnum í landinu ítarlegt bréf, er laut að því að hátíðin
skyldi fram fara 2. júlí um land allt og að tveir menn eða
fleiri úr hverju kjördæmi skyldu koma saman á Þingvöllum
Þann dag, til þess að ræða ýms velferðarmál lands og þjóðar,