Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1956, Síða 4

Kirkjuritið - 01.12.1956, Síða 4
Ljós jólanna Og Ijósið skín í myrkrinu, og myrkrið hefir ekki tekið á móti því. — (Jóli. 1. 5). Þetta eru orð, sem aldrei fyrnast heldur eru eilíf ung, eilíf sönn, eilíf ný. í þeim er fólginn í senn stærsti fagnaðarboðskap- ur og hryggilegasta harmsaga veraldarinnar, fagnaðarboðskap- ur, sem hafinn er yfir stund og stað, gæddur eilífu eðli og eilífum mætti, og harmsaga, sem ekki aðeins gerðist á ákveðnum stað og stundu, sem er löngu liðin, heldur er að gerast enn í dag og snertir hvern einasta hugsandi mann. Og því er það, að þessi orð hafa verið, eru og verða íhugunarefni hverrar einustu jóla- hátíðar. Jesús Kristur, hann, sem fæddist í myrkri hinnar fyrstu jóla- nætur í fjárhúsinu á Betlehemsvöllum, hann var ekki aðeins ljós heimsins, hann er það Ijós enn í dag. Frá honum stafar eilíf birta. Og við það ljós eygjum við þetta þrennt: föðurkærleika Guðs, takmark okkar eigin lífs og þá von, sem veitir okkur veik- um djörfung og styrk. Ég ræði ekki hér um gildi þessa hvers um sig. Það er óþarft að segja blóminu frá gildi sólskinsins á sumarmorgni. Það segir miklu betur frá því sjálft, þegar það brosandi breiðir blöð sín og krónu við birtu og yl. Sennilega finnum við þetta þó átak- anlegast og skýrast, ef við hugsum okkur þann möguleika, að ljósið hefði aldrei verið kveikt, að við ættum engin jól, að birtan frá Kristi, kenningu hans, lífi, starfi, fórn og upprisu hefði aldrei ljómað yfir dapran heim. „Ljósið skín í myrkrinu, og myrkrið hefir ekki tekið á móti því“. Er þetta ekki undarlega að orði komizt? Hljómar það ekki eins og fjarstæða, að myrkrið taki ekki á móti ljósinu? Er ekki reynslan búin að margsanna okkur yfirburði ljóssins og sigur þess yfir myrkrinu? Ekki getur myrkrið slökkt Ijósið. Þvert a

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.