Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1956, Side 5

Kirkjuritið - 01.12.1956, Side 5
LJÓS JÓLANNA 443 móti, það skín því skærar, sem myrkrið er svartara. Þegar við komum inn í myrkt herbergi og styðjum á kveikjarann og raf- ljósin eru í lagi, þá verður glóandi bjart í stofunni. Þar er ekkert ,,ef“ eða „en“. En ertu nú alveg viss? Það er hvergi myrkur á yfirborðinu. En það kann að vera myrkur undir stólnum eða á bak við skápinn. Og það er svartamyrkur niðri í kommóðu- skúffunni. Stofan er öll í Ijósinu nema þar, sem eitthvað skyggir á. Þar er myrkrið. Það skýlir sér æfinlega á bak við eitthvað. Það er í felum. í einu af sínum áhrifamestu kvæðum segir Einar Benedikts- son: „Ljósherrann breiðir á lífsins brautir liljuprýði og eikarþrótt, — en myrkrið felur sig helkalt og hljótt í hjarta mannsins, með nagandi þrautir.“ Þetta er hin mikla harmsaga. Þrátt fyrir hina dýrðlegu yfir- burði ljóssins, þá á myrkrið þetta úrræði að fela sig, skýla sér á bak við einhvern vegg og komast þannig hjá því að taka á móti ljósinu, hversu skært sem það er. Það verður ekki bjart 1 myrkum hug mannsins fyrir það eitt, að hann kveikir ljós í stofunni í kring um sig. Þá væri auðvelt, mér liggur við að segja °f auðvelt, að vinna bug á myrkri mannlegra þjáninga og hug- arangurs. Jólaguðspjallið segir frá því, að hina fyrstu jólanótt hafi fjár- hirðar verið úti í haga hjá Betlehem og gætt þar um nóttina hjarðar sinnar. „Og engill Drottins stóð hjá þeim og dýrð Drott- ms ljómaði í kring um þá, og urðu þeir mjög hræddir." Dýrð Drottins ljómaði í kring um þá, en ekki í sál þeirra og hug. Þar var myrkur. Þess vegna urðu þeir hræddir. Það var ekki fyrr en þeir heyrðu englasönginn hljóma og fagnaðarboðskapurinn naði að snerta sál þeirra, að ljósið tendraðist í þeim sjálfum °g þeir sneru fagnandi til fjárhússins, þar sem nýfætt Jesú- bamið hvíldi, „til þess að sjá þennan atburð, sem orðinn er og Drottinn hefir kunngjört oss.“ í fullar 19 aldir hefir Ijós Frelsarans logað í myrkri þesearar

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.