Kirkjuritið - 01.12.1956, Qupperneq 6
444
KIRK JUBITIÐ
köldu veraldar. Og í allar þessar aldir hafa þjónar hans reynt
að bera þetta ljós úr einu landi til annars. Vafalaust hefir þeim
tekizt þetta vandasama en veglega hlutverk misjafnlega vel.
Stundum hefir það helzt til mikið verið byrgt í blæjum dogma
og fræðikenninga. Einstöku þjónn kann að hafa skyggt sjálfur
á það að einhverju leyti, af gáleysi þó fremur en ásetningi. Eigi
að síður eigum við þeim í heild mikið að þakka. Og af mistök-
unum eigum við sjálfir að læra, en ekki að láta okkur nægja það
eitt að kveða yfir þeim harðan dóm. „Sá yðar, sem syndlaus er,
kasti fyrsta steininum.“ Það er hið mikla fagnaðarefni og gleði-
boðskapur, einnig um þessi jól, að ljósið skín í myrkrinu“, log-
ar enn, lýsir enn, vermir enn. Og Guði sé lof fyrir það, að frá því
Ijósi hafa kynslóðirnar hlotið ómetanlega blessun, kraft og hugg-
un. Þ. e. a. s. þeir, sem tóku á móti því, leyfðu því að streyma
inn, lýsa myrkrið og verma og ylja eigin hug og hjarta.
Að þessu sinni skín ljós jólahátíðarinnar yfir myrka jörð og
dapurt og kvíðandi mannkyn, vonsvikið á marga lund. Þrátt
fyrir alla sína veraldarvizku, tækni og framfarir hefir því ekki
tekizt að finna hamingjuna eða hið sanna frelsi, ekki einu sinni
heppnazt að bægja á burtu skorti brýnustu lífsnauðsynja og
óttanum um að verða rænt frumstæðustu mannréttindum. Við
erum hrædd og kvíðandi eins og fjárhirðarnir forðum. Að vísu
stendur engill jólanna hjá okkur og dýrð Drottins ljómar í kring
um okkur nú eins og þá. En við erum hrædd vegna þess, að við
erum ekki sjálf nægilega opin fyrir ljósinu af hæðum, myrkrið
hefir ekki tekið á móti því, heldur felst það í leynum hugans „hel-
kalt og hljótt með nagandi þrautir.“
Við köllum jólin „ljóssins hátíð“, og það er rétt. En liversu
margir eru þeir, sem þá láta sér nægja, með aðstoð aukninnar
tækni, að kveikja sem flest og skærust Ijós í kring um sig eða
hyggjast að skapa sér hátíð með lostætum mat, ljúffengu víni eða
glingri úr búðunum, sem oft gengur langt úr öllu skynsamlegu
hófi. Þetta er rangt. Þetta út af fyrir sig skapar engin jól, jafn-
vel oft hið gagnstæða. Þessi dýrð er hverful. Hún ljómar aðeins
í kring um okkur og varir stutta stund.
Ef þú vilt eignast jól, — og ég vona að þú viljir það — þá skalt