Kirkjuritið - 01.12.1956, Qupperneq 18
Kirkjan og frelsisstríð Ungverja
Tvo kirkjuhöfðingja ber hæst í frelsisbaráttu ungversku þjóð-
arinnar, annan kaþólskan og hinn lúterskan, Mindszenty kardin-
ála og Ordass biskup.
Mindszenty hefir orðið margt og mikið að þola. Hófst píslar-
ferill hans fyrir átta árum. Þegar honum var það ljóst, að stjórn
lands hans myndi handtaka hann, lét hann það boð berast til
kaþólskra safnaða í Ungverjalandi, að þeir skyldu hafa að engu
játningar, sem frá honum kynnu að koma sakir „blekkingar eða
mannlegs veikleika.“ Fyrir jól 1948 var honum varpað í fang-
elsi, og hófst svívirðileg rannsókn yfir honum og pyndingar, sem
miðuðu að því að brjóta viljaþrek hans á bak aftur og fá hann
til þess að játa allt, sem á hann var borið. Var hann síðan dæmd-
ur af „alþýðudómstólnum“
fræga í Búdapest fyrir land-
ráð, í ævilangt fangelsi. Hann
var farinn að heilsu, er þessi
fangavist hófst, og var liann
fluttur stað úr stað, og fékk
aðeins fáeinum sinnum að sjá
móður sína, háaldraða. Ung-
verjar áttu að gleyma leið-
toga sínum. En svo varð ekki.
Þeir mændu til hans vonar-
augum og þráðu heitt, að
sú kæmi tíð að hann tæki
forystuna. Árið, sem leið, var
honum loks boðið frelsi, er
hann var mjög sjúkur orðinn,
en þau skilyrði voru sett, að
hann flyttist til Rómaborgar
Mindszenty kardínáli.