Kirkjuritið - 01.12.1956, Qupperneq 21
KIRKJAN OG FRELSISSTRIÐ UNGVERJA
459
Þrír leiðtogar Alkirkjuráðsins, Franklin Clark Fry, forseti mið-
stjómarinnar, Ernest Payne varaforseti og W. A. Visser’t Hooft
framkvæmdastjóri hafa lýst því yfir, að kristnir menn um heim
allan séu mjög hrelldir yfir hörmungum ungversku þjóðarinnar
vegna frelsisþrár hennar bæði í þjóðlífi og kirkjulífi.
Þeir minna þjóðirnar 165, sem eru í bandalaginu, á það, að
virðing og traust geti ekki komið í stað hræðslu og tortryggni
nema því aðeins, að þjóðirnar voldugu kippi burt okinu, sem
varnar nú öðrum þjóðum þess að ráða sjálfar, við fullt frelsi,
stjórn sinni og þjóðskipulagi. Er skorað á kirkjuna að veita at-
beina öllum þeim, sem verði að þola þjáningar og raunir í frels-
isstríði sínu.
Þessi ályktun verður nú send yfirstjórn Rússnesku Orþódoxu
kirkjunnar.
Og væntanlega verða Ungverjalandsmálin tekin fyrir á kirkju-
þingi Lúterska heimssambandsins næsta sumar, svo og Kýpur-
málin og önnur þau, sem þeim eru skyld.
Kirkjur margra þjóða liafa vottað Ungverjum innilega hlut-
tekningu í nauðum þeirra með fyrirbænum og hjálp í verki. Er
gott til þess að vita, að íslenzka kirkjan og íslenzka þjóðin, bæði
Alþingi og rikisstjórn, hafa lagzt á eitt í þessum efnum.
Nú líður að jólum, og enn einu sinni leikur um mannkynið
eins og andvari frá hæðum boðskapurinn um frið á jörðu. Enn
birtist mynd bamsins í jötunni, friðarhöfðingjans. í öllum kirkj-
um heimsins mun hljóma jólalofsöngurinn:
Dýrð sé Guði í upphæðum,
og friður á jörðu með mönnunum,
sem hann hefir velþóknun á.
Og þó skín Betlehemsstjarnan einnig nú á dauðans val.
Það er ein spurning, sem þjóðir heims og einstaklingar þurfa
að bera upp fyrir sjálfum sér í dýpstu alvöru: Er rúm fyrir jóla-
barnið í veröldinni? Er rúm fyrir það í þínu og mínu hjarta?
Að sama skapi sem fáum vér svarað henni játandi, eignumst
vér gleðileg jól.
Kom þú, Drottinn Jesús.
ÁSMUNDUR GUÐMUNDSSON.