Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1956, Page 22

Kirkjuritið - 01.12.1956, Page 22
PISTLSR Jólaskylda. Enn mun sumum, sem í skammdeginu koma til liöfuðborgar- innar, finnast mest til um ljósin, er leiftra á móti þeim líkt og brot af stjörnuhimninum væri fallið niður til jarðarinnar. Það er falleg og hrífandi sjón að horfa á dimmu kvöldi af Kjalarnesi til Reykjavíkur. Von að margur, sem býr enn við dauf lampaljós og ef til vill afskekkt, þar sem ekki sér nema til fárra eða engra bæja öfundi oss, sem eigum jafnvel á nóttum kost þess að ganga í ljósi úti og inni. Engin furða, þótt hann þrái, að sveitin hans njóti sem fyrst þeirra þæginda og unaðar. Og nú er verið að lýsa landið. Hefði átt að hefjast af meiri krafti fyrr, en mest urn vert, að loks þokast talsvert árlega í þá áttina. A jólunum má líka heita, að alls staðar sé upplýst, og hafi verið síðan kristni var lögtekin. Því að þá er þess minnzt, að jólin eru hátíð Guðs, sem býr í meira ljósi enn mannlegt auga getur litið, og fagnaðarliátíð fæðingar Jesú Krists, sem kallaði sig ljós heimsins og er það. í minningu þess óskum vér nú hvert öðru gleðilegra jóla. Og Guð gefi, að sú ósk verði alls staðar að veruleika. En mig langar til að varpa fram þeirri spurningu, hvort vér gætum nú einnar mestu skyldu jólanna, þeirrar, að bera sjálf eins mikið Ijós í bæinn og mannlífið og oss er fært. Kristindómurinn er ekki eingöngu, ekki einu sinni fyrst og fremst dýrðarsöngur. Hann er hins vegar m. a. heimsstefna. Bar- átta fyrir aukinni mannúð, almennu bræðralagi, alhliða menn- ingu, og hin sanna heimsfriðarstefna. Hvar sem eitthvað vantar á þetta, er skortur á kristni. Það er ekki sönnun þess, að lionum se sjálfum ábótavant, heldur að einstaklingamir séu vankristnir, þjóðfélagið ekki nægilega gegnsýrt af kristnum anda.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.