Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1956, Page 32

Kirkjuritið - 01.12.1956, Page 32
Frá hinum almenna kirkjufundi Kafli úr setningaræðu formanns stjórnarnefndar, Gísla Sveinssonar, sem háldinn var á kirkjufundi, er fram fór dagana 20.—22. okt. 1956. Góðir fulltrúar og fundarmenn! Ég vil hér með leyfa mér að segja þenna almenna kirkjufund settan. Og ber þá þegar að skýra frá því, að samkvæmt viðtekn- um reglum átti hann að haldast á síðastliðnu ári, 1955, en fórst þá fyrir (var aflýst) vegna yfirvofandi veikindafaraldurs hér í bænum og reyndar víðar. Hefir orðið að ráði, eins og tilkynnt hefir verið almenningi og nú má sjá, að horfið skyldi að fund- arhaldi þessu aftur i ár, þótt almennu fundunum hafi verið ætlað annað hvert ár aðeins, og hefir svo verið frá upphafi vega um þessa kirkjufundi fyrir landið allt. Hinir almennu kirkjufundir á íslandi hafa nú verið við lýði í 22 ár, en undirbúningur undir þá var hafinn 1933—1934 og fyrsti kirkjufundurinn haldinn á Þingvöllum og í Reykjavík forsum- ars 1934. Hélzt það síðan um hríð, að fundirnir voru haldnir á þeim tíma ársins, annað hvert ár, en er fram í sótti, þótti hent- ugra, vegna fundarsóknar víðs vegar að af landinu, að fundar- tíminn yrði reglulega að haustinu, og er svo enn í dag. Ef lýsa ætti tilgangi þessara almennu kirkjufunda og starfs- stefnu frá byrjun, þá myndi nægja í höfuðatriðum að greina til tvö orð: Sameina og örva! Það þýðir: í fyrsta lagi, að sameina kristið fólk í landinu til starfa fyrir trú og kirkju, enda þótt ýmsa greini á um einstök trúarleg atriði, sem ekki er nema mannlegt og hefir svo verið alla tíð, svo og að ræða og álykta um þessi mál án allrar úlfúðar, en af áhuga og sanngirni, með þá fullvissu í stafni, að þátttakendur vilji allir vinna að sama marki, þ- e- að eflingu Guðsríkis, eins og kristindómurinn boðar það, í þeirri föstu von og trú, að það eitt geti leitt til sannrar hjálpar, og sálu- hjálpar, villuráfandi mannkyni og til friðar og farsældar í þjáð- um og hrjáðum heimi. Og í öðru lagi, að örva til átaka, leynt

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.