Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1956, Qupperneq 34

Kirkjuritið - 01.12.1956, Qupperneq 34
472 KIRK JURITIÐ Samþykktir kirkjufundarins. 1. Kirkjubijggingar. Hinn almenni kirkjufundur, sem lialdinn er í Reykja- vík daganna 20.—22. október 1956, skorar fastlega á ríkisstjórn og Alþingi að koma því til leiðar, að sett verði löggjöf um kirkjubyggingar í þjóðkirkj- unni, þar sem ríkinu sé gert að skyldu að standast kostnað við þær að 3/4 hlutum (stofnkostnaðax) móts við hlutaðeigandi söfnuði, er greiði kostnað- inn að öðru leyti og annist viðhald, samkvæmt nánari reglurn, er um það yrðu settar. 2. Byggingastijrkur. Hinn almenni kirkjufundur, haldinn í Reykjavík dagana 20.—22. okt. 1956, skorar á hið háa Alþingi að leggja að minnsta kosti 2 milljónir króna í kirkjubyggingasjóð á fjárlögum næsta árs. Verði eigi minni fjárhæð lögð árlega í þann sjóð, þar til Alþingi hefir samþykkt ný lög um aðstoð og framlög til kirkjubygginga. 3. Félagslieimilasjóður. Hinn almenni kirkjufundur 1956 telur tvímæla- laust, að allir löggiltir söfnuðiir landsins eigi að hafa rétt til styrks úr Félagsheimilasjóði til bygginga safnaðarfélagsheimila og safnaðarhúsa, þar sem skilyrði séu til ýmiss konar félags- og tómstundastarfs á vegum safn- arins. Treystir fundurinn biskupi og kirkjumálaráðherra til þess að tryggja söfnuðum þann rétt. 4. Skattfrelsi gjafa. Á öllum öldum og meðal allra trúarsamfélaga hefir það verið sjálfsögð venja, að menn færðu Guði sínum að fórn nokkum hluta afla síns eða uppskeru. Hinn almenni kirkjufundur 1956 telur það því eðlilegt, að mönnum se heimilt að gefa til kirkjulegrar starfsemi allt að tíund tekna sinna, án þess að þurfa að greiða skatta af þeirri upphæð. Skarar fundurinn á Alþingi að gera slíkar fórnir skattfrjálsar, svo sem þegar tíðkast um nokkrar aðrar gjafir til ahnenningsheilla. 5. Kirkjugarðar. Hinn almenni kirkjufundur 1956 skorar á kirkjustjórnina að tryggja betur en gert er viðhald og verndun kirkjugaaða. 6. Hallgrímskirkja. Hinn almenni kirkjufundur 1956 litur svo á, að bygg- ing Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti varði ekki aðeins hlutaðeigandi söfn- uð helduir einnig Reykjavíkurbæ og ríkið. Þess vegna þurfi þessir aðilar að skipa sameiginlega nefnd, er vinni að framkvæmd þessarar kirkjubyggingar- 7. Stöðvun sorprita. Hinn almenni kirkjufundur 1956 skorar á hlutað- eigandi yfirvöld og allan almenning að hindra eftir föngum innflutning, útgáfu, sölu og lestur sorprita, erlendra og innlendra.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.