Kirkjuritið - 01.12.1956, Qupperneq 39
VÍSITASÍA BISKUPS
477
Seinustu kirkjurnar, sem vísiteraðar voru í prófastsdæminu,
voru Vallaneskirkja og Þingmúla, er séra Pétur Magnússon þjón-
ar. Vallaneskirkja er mjög stílhrein og með fegurstu sveitakirkj-
um á landinu. í kirkjugörðu'm beggja eru gróðursett tré.
Dvergasteinsprestakall taldist áður til Suður-Múlaprófasts-
dæmis. Nú heitir það Seyðisfjarðarprestakall og er í Norður-
Múlaprófastsdæmi. Sóknarprestur þess er sem kunnugt er séra
Erlendur Sigmundsson. Hófst vísitazían í því prófastdæmi 24.
ágúst, að Klyppsstað í Loðmundarfirði. Hefir þar fækkað mjög
fólki á síðari árum, svo að sumum þykir horfa til auðnar, en
vonandi Iielzt byggð áfram í þessari gróðurríku sveit, og mikil
er tryggð fólksins við kirkju sína. Daginn eftir vísiteraði biskup
Seyðisfjarðarkirkju, sem er hæði fögur og vel búin að góðum
gripum, og hafa konur gefið marga þeirra. Var það svo yfirleitt
um kirkjurnar í báðum prófastsdæmunum, að konur hafa gengið
bezt fram í því að prýða þær og gjöra þær vistlegar. Um Seyðis-
fjarðarkirkju er trjálundur, er Kvenfélag Seyðisfjarðar gjörði.
Sunnudaginn 26. ágúst vísiteraði biskup að Eiðum, þar sem
hann var fyrrum skólastjóri, 1919—’28. Var fjölmenni saman
komið. Prestaskipti verða í Kirkjubæjarprestakalli. Séra Sigurjón
Jónsson, sem hefir þjónað því í 37 ár við miklar og almennar
vinsældir, lætur af embætti, en við tekur ungur prestur, séra Einar
Þór Þorsteinsson, og.þjónar hann einnig eins og séra Sigurjón
Hofteigsprestakalli, eða alls sjö kirkjum: Eiða, Hjaltastaðar,
Kirkjubæjar, Sleðbrjóts, Hofteigs, Eiríksstaða og Möðrudals.
Eylgdi hann biskupi á allar þessar kirkjur. Kirkjukór að Eiðum
er prýðilegur, enda ágætlega æfður undir handarjaðri skólastjór-
ans, Þórarins Þórarinssonar, sem hefir komið Eiðaskóla til mikils
þroska.
Næsta dag var vísitazía að Hjaltastað. Fylgdi organleikari
Eiðakirkju biskupi þangað og stýrði safnaðarsöngnum. En full-
Ur úhugi er nú vaknaður á því, að söfnuðurinn eignist sinn eigin
organleikara og söngstjóra. Meðhjálpari Hjaltastaðarkirkju, Geir-
mundur Magnússon, hefir gegnt því starfi af mikilli trúmennsku
1 hálfa öld. Kona er þar formaður sóknarnefndar.
Dagana 28. og 29. ágúst var biskup í Desjamýrarprestakalli,