Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1956, Side 43

Kirkjuritið - 01.12.1956, Side 43
SÓLARDANSINN 481 þann velgerning, er honum var sýndur. Hann leit upp og gekk annars hugar nokkurn spöl, og er hann kom aftur til sjálf sín, sá hann kindur sínar skammt undan, og var sem þær kæmu móti honum. Hann var léttstígur, er hann rak þær heim. Undrið á fjallinu ljómaði í liugskoti hans. Mér er í barns minni, er ég heyrði Þorstein fyrst segja frá þess- ari dásamlegu sýn. Hann var með tár í augum og ljóma hrifning- ar í svip sínum. Sjálfsagt mundi nútíma kynslóðin, menntuð, guðstrúarlítil og efagjörn, yppta öxlum, ef hún mætti hlusta á sögu Þorsteins, eins og hann sagði hana um vitrunina á fjallinu. Hún mundi hafa á takteinum „eðlilegar“, náttúrufræðilegar skýringar á þessu fyrirbæri og telja það algerlega utan við yfirnáttúrulegt eðli. Sólaruppkoma á páskadagsmorgun væri samskonar viðburður og gerðist aðra morgna ársins. Þorsteinn var hvorki náttúruskoðari, skáld eða heimspekingur. Hann var ómenntaður en greindur, hversdagslegur alþýðumað- iir, 0g naut þó dásemda náttúrunnar betur flestum langlærðum, námsþreyttum mönnurn, því trú hans var barnsleg og lotningin fyrir guðdóminum og leyndardómum tilverunnar einlæg og sönn. Og mundi ekki trú hans og hugboð hafa dregið honum eins drjúgt og verið honurn svo haldgóð í amstri og erfiðleikum lífs- baráttunnar sem vizka og kennisetningar lærða mannsins, sem neitar öllu því, sem ekki verður þreifað á eða sannað með vís- indalegum rökum? Og veit þó, ef til vill, ekki meira en fávís smælingi um það, sem er handan við jarðvistina, þann heim, sem trúin ein nær til. MagnÚs Björnsson. Guðsmenn. >.Nú veit ég, hvers vegna þið Ingimarssynir eruð beztu mennirnir í sveitinni.“ — „Það er vegna þess, að Guð hefir verið okkur náðugri en öðrum, „svaraði Ingimar. — „Nei, ekki er það nú þess vegna, heldur eruð þið ekki í rónni fyrr en þið eruð sáttir við Drottin.“ — Sehna Lagerlöf.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.