Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1956, Page 47

Kirkjuritið - 01.12.1956, Page 47
PREDIKARINN Starf predikarans er eitt hið þýðingarraesta og um leið erfið- asta, sem nokkur maður tekst á hendur. Einkanlega veldur hinn skyldubundni tími miklum áhyggjum, þetta að verða að koma fram á vissu klukkuslagi sunnudag eftir sunnudag og tala fyrir fólki helzt af áhuga og eldmóði, hvernig sem á stendur. í vitundinni hljómar: „Þú skalt, þú skalt,“ hvort sem þú getur eða getur ekki, vilt eða vilt ekki. Rithöfundurinn, skáldið og fræðimaðurinn geta oftast valið þann tíma, sem aðstæður og kraftar bjóða heppilegastan, og listamaðurinn tekur til starfs, þegar andinn kemur yfir hann, en látið ógert, þegar allar lindir virðast frosnar. En slíkt getur predikarinn ekki leyft sér. Og svo verður hann að gera sér að góðu litla eða lélega áheyrn og loka sín handrit niðri í skúffu, er hann hefir einu sinni flutt þau fáeinum sálum, sem kannske hlusta af þægð eða vana. En samt á starf hins kristna predikara að vera grunnur siðgæðisþroskans og mótun þeirrar fullkomn- unar, sem þjóðfélög og menning þeirra hvílir á. Þegar á það er htið þýðir ekki að gefast upp, hvað sem fyrir kemur og hvernig sem umhverfi og aðstæður lama og sljóvga. Ein er þó hættan ntnlin, sem ekki má gleyma á vegi predikarans, en það er, að hann verði steinrunninn vanaþræll og gatslitin grammófóns- Phita, áður en af veit. Gegn þessu eru til ýmis ráð, sem reynslan telur mikilvæg, einkum sé þeirra gætt frá upphafi starfsins. hað er sagt um kennara nokkurn, að hann hafi alltaf kennt hezt þá námsgrein, sem hann tók sjálfur lélegasta einkunn í. þegar hann var spurður, hvernig á þessu stæði svaraði hann: >.Ég bý mig alltaf bezt undir stundirnar í þeirri grein.“ Þarna er eitt grundvallaratriði predikarans. Hann þarf alltaf að líta á hvert predikunarefni sem sérstakt úrlausnarefni til undirbúnings,

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.