Kirkjuritið - 01.12.1956, Síða 54
+"—“——"<—>■—"■—"■—■"—"■—■■—"■—....+
---------------j Erlendar frérrír j---------------------------------
4,.,,,,—„„—„„—„„—„„—„„—„„—„„—„„—„„—„„—„4.
Nýtt guðspjall. Sunnarlega á Egyptalandi hefir fyrir nokkru fundizt
safn af orðum, sem Jesú Kristi eru eignuð. Orð þessi eru í handriti af
Tómasarguðspjalli, sem talið er frá 3. eða 4. öld. — Franskur háskólakennari
i trúarbragðasögu, Henri Pucch að nafni, skýrði nýlega frá þessu í Cairo.
Hann sagði, að þessi skjöl hefðu fundizt í keri í kirkjugarði í Nog Hamadi,
sjötíu mílur enskar frá Luxor, og hefðu þau fyrst verið rannsökuð á þessu
ári. Ilandritið er skrifað á sefpappir og bundið í leðurband. Það hefst, sem
hér segir: „Þetta eru orðin huldu, sem hinn lifandi Drottinn mælti og
Didymus Júdas Tómas hefir ritað. Og hann mælti: Sérhver sá, sem nær
að skilja þessi orð, mun eigi srnakka dauðann.“ — Þýðingar er vænzt inn-
an skamms á þessu guðspjalli.
Erkibiskupinn í höfuðborg Irlands lætur af embætti um næstu
áramót. Hann heitir Arthur William Barton og hefir verið biskup í 26 ár.
R. D. Meredith heitir enskur prestur, sem starfar í lögregluliðinu.
Hann fær þó að sjálfsögðu „frí“, þegar aukaverk kalla að. En á þennan liátt
nær hann á ýmsan liátt að kynnast söfnuðinum og öllum almenningi.
400 ár eru liðin frá dauða stofnanda Jesúítareglunnar, og hefir þess
verið minnzt um heim allan. Þótt regla þessi væri á sínum tíma sett til höf-
uðs mótmælendum, stöðvaði framsókn þeirra að miklu leyti og einstakir
meðlimir hennar eigi ófagra sögu, er skylt að geta afreka hennar og heinr-
sögulegt gildis. Upphafsmaður hennar, Ignatius Loyola (f. 1491 d. 31. júh
1556), var spænskur aðalsmaður, sem var trúarhetja og heimsflóttasinni.
— A uppstigningardegi 1534 hétu sex ungir menn auk Loyola pílagríms-
för til Landsins helga, en ef það tálmaðist, að þeir skyldu ganga til Rómar
og heita páfanum skilyrðislausri hlýðni, hvað sem honum þóknaðist að
að bjóða þeim, eða leggja þeim á herðar. Er þetta sérlieiti Jésúita auk hinna
venjulegu regluheita um fátækt, skírlífi og undirgefni við yfirboðara. En
einkunnarorð reglunnar eru þessi: „Guði til aukinnar dýrðar.“ Sex ánim
síðar staðfesti páfinn hina nýju reglu með bréfinu Regiminí Militantis
Ecclesiae. Við dauða stofnandans töldust reglubræður um 1000. Nú eru
þeir um 33000 og dreifðir um allar jarðir. Halda þeir 59 háskóla, gefa ut
1320 tímarit. Margir eru starfandi prestar, en annars fást þeir við flest það,