Kirkjuritið - 01.12.1956, Síða 56
494
KXRKJURITIÐ
jafnframt, og gat sér hinn bezta orðstír. Séra Bragi er mjög mikill áhuga-
maður og dugnaðannaður og hefir m. a. látið sér einkar annt um kristi-
legt æskulýðsstarf. Heíir hann nú nýlega veirið ráðinn af Reykjavíkurbæ
til þess að vinna að heilbrigðu menningarlífi og félagslífi unga fólksins
hér í bænum. Oskar Kirkjuritið honum blessunar í starfi.
Frú Sigurbjörg Bogadóttir prestsekkja frá Heydölum er nýlátin, 81
árs að aldri. Hún giftist séra Vigfúsi Þórðarsyni frá Eyjólfsstöðum á Völl-
um 1893. Þar bjuggu þau í 7 ár. Þá gerðist hann prestur, fyrst á Hjalta-
stað og síðan í Heydölum. Sára Emil Björnsson segir í minningargrein: „Frú
Sigurbjörg var örlát kona með afbrigðum og hjálpsöm, mátti ekkert aumt
sjá.“
Pálmi Hannesson rektor Menntaskólans varð bráðkvaddur 25. f. m.
Hann var einn af mikilhæfustu Islendingum sinna samtíðarmanna og
drengur góður. Ilafði með sæmd gegnt sinni ábyrgðanniklu stöðu lengur
en nokkur fyrirrennara sinna.
Gjafir til Skálholtskirkju. Kirkjuklukkan frá Finnlandi er nú komin
til Islands, hinn ágætasti gripur. Ennfremur hafa tvær norskar timburverzlan-
ir, Berger Langmoen Brunundal, Hamar, og Aksel Bruvig Slottsgárden,
Bergen, sent til kirkjunnar mikið byggingarefni. Er Ijúft að þakka þessar
góðu gjafir.
Prestsþjónustu í Hvammsprestakalli í Dalaprófastsdæmi annast
þeir fyrst um sinn unz öðru vísi verður ákveðið nágrannaprestarnir séra
Eggert Ólafsson og séra Þórir Stephensen.
Æskulýðsblaðið gefa þeir út Akureyrarprestarnir séra Pétur Sigur-
geirsson og séra Rristján Róbertsson. Októberblaðið er prýðilegt að efni og
frágangi. Nefna má frásögn um Nonna (Jón Sveinsson) eftir Friðrik Magnús-
son lögfræðing, myndasögu, útskýringu á 8. boðorðinu o. fl. Þessi útgáfu-
starfsemi er til fyrirmyndar.
Safnaðarblað Langholtssóknar. Langholtssöfnuðurinn gefur út eins
og Dómkirkjusöfnuðurinn safnaðarblað, og er það nú á öðru ári. Blaðið
skýrir m. a. frá fyrirhugaðri kirkjubyggingu og ýmsum framkvæmdum.
Kristilegt æskulýðsstarf er mikið í söfnuðinum, og ágætar kirkjusamkomur
hafa verið haldnar, þar sem börn hafa sungið fagra söngva og andleg