Kirkjuritið - 01.06.1957, Blaðsíða 14

Kirkjuritið - 01.06.1957, Blaðsíða 14
252 KIRKJU'RITIÐ nauðsyn kirkjuagans. Vér erum ekki form fastir, íslendingar, né elskir að aga og það hefir sína kosti. En ekkert félag þolir, að allt sé þar á ringulreið. Kirkjan ekki heldur. Þess vegna undirstrika ég það hér, sem ég hefi áður vikið að í þessum pistlum, að á vissum sviðum og í ákveðnum atriðum er oss nauðsyn á að koma á meiri formfestu innan kirkjunnar, t. d. að því er varðar sjálfa guðsþjónustuna og algengustu helgisiði, en ekki síður barnafræðsluna, og einnig samstarf og samskipti okkar prestanna. Form og andi. Enn er ekki úr vegi að minnast þess í sambandi við kirkju- þingið, að form og andi er sitthvað og að ekkert skipulag er einhlítt til mikils árangurs, skorti vilja eða andlegan mátt til þess að glæða það líf og beita því til stórvirkja. Og sannast sagt eru það hvorki tækifærin né skipulagið, sem oss hefir skort mest á undanförnum árum til að gera kirkjuna að vold- ugri né áhrifameiri stofnun í þjóðfélaginu. Það er öllu heldur sannfæringarkrafturinn og eldmóðurinn. Oss er að ýmsu leyti '/orkunn. Vér erfðum frekar efa en trúarhita yfirleitt, og kyn- slóð vor hefir staðið ráðlítil og spyrjandi í umróti og byltingu heimsstyrjaldarinnar. En miklu líklegra er, að bæði allur lands- lýður og kirkjunnar menn fari að átta sig á, að guðleysi leiðir út í ógöngur og andvaraleysi veldur því, að akurinn fer í órækt og þekst af illgresi. Prestar og söínuðir. Stundum segja menn í hinum og þessum söfnuðum: Við höf- um fengið góðan prest! Og í öðrum: Hann er alveg liðónýtur, karlsauðurinn! Hvort tveggja má efalaust nokkuð til sanns vegar færa. En ég efast um, hvort söfnuðunum, og jafnvel okk- ur prestunum, er það fullljóst, hve mikil gagnáhrif prestur og söfnuður hafa hvor á annan. Sannleikurinn er sá, að presturinn hefir ekki aðeins alltaf einhver áhrif á söfnuðinn, heldur er

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.