Kirkjuritið - 01.06.1957, Page 46

Kirkjuritið - 01.06.1957, Page 46
284 KIRKJUKITIÐ 2.—16. rnaí sl. var haldin mikil sýning í Lundúnum að tilhlutun brezka og erlenda Biblíufélagsins og hinnar svonefndu Kirkjulegu hjálpar- starfsemi. Einkunnarorð sýningarinnar voru: Mannlegar þarfir. Sérstaklega var vakin athygli á hörmungum flóttamanna víða um heim, matvælaskorti milljóna, sívaxandi þörfum mannkynsins sakir hinnar öru mannfjölgunar, og hinni andlegu neyð, sem því miður er jafnvel ríkjamdi víða, þar sem efnahagsörðugleikar eru ekki fyrir hendi. Sýning þessi var fjölsótt. f— ---— ---------+ -------| Innlendnv frcrtír |------ Séra Þorsteinn Gíslason ->• prófastur í Steinnesi var sextugur 26. júní. Asgeir Ingimarsson tók guðfræðipróf í vor. Hlaut I. eink. Séra Einar Þór Þorsteinsson hefir verið skipaður prestur í Kirkjubæjarprestakalli í Norður- Múlaprófastsdæmi, að undangeng- inni lögmætiri kosningu, frá 1. júlí að telja. Séra Lárus Halldórsson hefir verið ráðinn af biskupi sendi- prestur um næstu þrjú ár. Séra Helgi Sveinsson í Hveragerði orti „Ávarp Fjallkonunnar", sem frú Iielga Valtýsdóttir flutti í ár af svölum Alþingishússins 17. júní. Séra Sigurður Einarsson í Holti undirbýr nú útgáfu nýrrar Ijóða- bókar eftir sig. Þar mun m. a. birtast kvæði um merka kirkjuhöfðingja.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.