Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1959, Síða 13

Kirkjuritið - 01.02.1959, Síða 13
KIRKJURITIÐ 59 flutningi fólks, fatagjöfum og fræðslu, læknishjálp, sálgæzlu presta, útvegun vegabréfa og ótal mörgu öðru fyrir allt þetta fólk, sem ber hin þungu gjöld fyrir styrjaldir 20. aldar. A hverju ári eru veittir 120 námsstyrkir til guðfræðinga, svo að þeir geti stundað guðfræðinám erlendis. Kirkjulegar og þjóðfélagslegar athuganir á sameiginlegri abyrgð kristinna manna á þeim landsvæðum, sem á hafa orðið skyndilegar þjóðfélagsbreytingar, krefjast mikilvægra rann- sókna á þessum sviðum, og skal athyglinni beint að þjóðfélags- legum, stjórnarfarslegum og f járhagslegum vandamálum og við- horfi kirkjunnar til þeirra. Aðrar „ekúmeniskar“ rannsóknir, sem Alkirkjuráðið hefir fengizt við, lúta að „Drottinvaldi Jesú Krists", „Kristi og kirkju hans“ og „Guðfræði fyrir kristni- boðið“. Heilsuverndarstörfin hafa komið upp í Sviss hvíldarheimili fyrir presta og starfsmenn kirkjunnar og byrgt söfnuði kirkj- unnar austan járntjalds meðulum. En á þeim hefir verið til- finnanlegur skortur. Gjöfum hefir verið safnað og þeim útbýtt til 50 þjóða á hverju ári. Eru þær matvæli, fatnaður og aðrar nauðsynjar og uema alls um 150000 smálestum. Heilir skipsfarmar af alifugl- um, búfénaði o. s. frv. hafa veitt hrjáðum stríðsþjóðum hjálp til þess að koma landbúnaði þeirra í betra horf. Alkirkjuráðið skýrir í blöðum sínum frá kirkjulegum fréttum bæði með orðum og myndum. Það er einn þáttur i daglegri starfsemi þess að kynna það, er gerist, í dagblöðum, á kvik- rciyndasýningum, í útvarpi og sjónvarpi. Bróðurlegir starfsmenn hvetja til kirkjulegs samstarfs og þjónustu, og kirkjur senda starfsmenn sína og presta til ann- arra Þjóða til ákveðinna starfa. Lætur Alkirkjuráðið kirkjumar vita um beiðnir, sem berast um þess konar þjónustu, og hvet- ur til hennar. Alkirkjuráðið er jafnan viðbúið að bæta úr nauðum, er steðja að. Það aflar sér allrar þeirrar vitneskju um slys og óhöpp, sem auðið er, skýrir kirkjunum frá þvi og hvetur þær til hjálpar. Arið 1946 var komið á ekúmenisku stofnuninni í Bossey í Sviss til þess að safna þar saman kristnum mönnum, sem þrá að vinna brautryðjendastarf í alkirkjumálum. Kristið fólk af

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.