Kirkjuritið - 01.02.1959, Blaðsíða 24
70
KIRKJURITIÐ
Er ekki senn kominn tími til að átta sig á, að það er enn
fegurra og hamingjuríkara að vinna saman að vandamálum
lífsins en haldast í hendur andspænis dauðanum? Og hvað þjóð-
hollustunni viðvíkur . . . Það hefir verið sagt: Sá, sem byrjar
á því að elska sinn eigin trúflokk meira en sannleikann, endar
á því að elska sig og sína kreddu meira en allt annað.
Má ekki eins segja: Sá, sem byrjar á því að elska flokk sinn
meira en þjóð sína, endar á að elska sjálfan sig enn meira en
nokkru sinni flokkinn! Þá verður hætt að syngja: Ég vil elska
mitt land, — enda óneitanlega mikið farið að draga úr því.
Gunnar Árnason.
Úr spekinnar bók:
Gætið yðar við ónýtu hljóðskrafi, og varðveitið yðar tungu fyrir
lastmælgi!, því að heimskulegt slaður fer eigi til einskis af stað, og
lygagjarn munnur deyðir sálina. (1,11).
☆
Þeir, sem Honum (þ. e. Guði) treysta, munu við sannleikann
kannast, og þeir, sem trúir eru í elskunni, munu hjá honum vera;
því að náð og miskunnsemi er (hlutdeild) hinna útvöldu. (3,9).
☆
Því að eins og duftið í metaskálinni er allur heimurinn fyrir þér,
og sem einn morgundaggardropi, sem fellur á jörðina. (11,22).
☆
En þú miskunnar öllum; því að þú megnar allt, og lítur fram
yfir syndir mannanna, svo að þeir bæti sig. Því að þú elskar allt,
sem til er, og hefir eigi ímugust á neinu, sem þú gjörðir; því að ef
þú hataðir, svo hefðir þú ekkert skapað ... þú hlífir öllu, því að
það er þitt, Drottinn, lífsins vinur. (11, 23n).
☆
Enginn maður getur myndað nokkurn Guð, sem sé honum (þ. e.
Guði) líkur.Sjálfur dauðlegur myndar hann dautt með syndugum
höndum. Hann sjálfur er betri en það, sem hann myndar, því að
hann lifir, en hitt aldrei. (15,17n).