Kirkjuritið - 01.02.1959, Side 29
KIRKJURITIÐ
75
Næstu tvö árin eftir að séra Jón lauk embættisprófi vann
hann við verzlunarstörf á Hólmavík. En 31. ágúst 1904 var
honum veitt Tröllatunguprestakall, og vígður var hann 11. sept.
s. á. Fyrstu f jögur árin sat hann á Broddanesi, en síðan á Kolla-
fjarðarnesi, er þá var gert að prestssetri. Prófastur varð hann
í ársbyrjun 1921. Prests-og prófastsstörfum gegndi hann til
vors 1951, en bjó áfram á Kollafjarðarnesi til 1954. Þar undi
hann bezt, og var eindregin ósk hans að mega dveljast þar
til æviloka. En sökum heilsubrests varð hann að bregða því
ráði og flytjast til Reykjavíkur. Hér undi hann og hag sínum
brátt vel, en hin næstu sumur dvaldist hann hjá syni sínum
nyrðra. Naut hann þeirrar dvalar ríkulega, og ekki sízt þess,
er honum gafst kostur að ganga milli bæja, þar sem honum
fannst vera „heilög jörð“, eins og hann kvað sjálfur að orði.
Sér Jón átti frændum og vinum að mæta, er hann hóf prests-
starf í Tröllatunguprestakalli. Og þar brá aldrei skugga yfir
á hans löngu embættistíð. Allir máttu finna góðvilja hans og
að hann fylgdi því einu fram, er hann vissi sannast og réttast.
Honum féll þungt, ef misklíð var manna á milli, og vildi þar
jafnan bæta um og sætta. Prestsstörf framkvæmdi hann á lát-
lausan hátt, eins og helgri þjónustu sæmir. Hann hafði fagra
söngrödd, og gaf altarisþjónusta hans helgiathöfnum sérstak-
lega fagran blæ.
Séra Jón kvæntist 5. júlí 1908 Guðnýju Magnúsdóttur frá
Miðhúsum í Hrútafirði, sem lifir mann sinn ásamt átta börn-
um þeirra hjóna. Hún er kona vel að sér gjör og vinsæl, hvar
sem hún kynnist. Mun gestum, er komu að Kollafjarðarnesi,
seint gleymast alúð þeirra hjóna og barna þeirra. Miklu var
þar að sinna, heimilið lengst af fjölmennt og búskapur rek-
inn í allstórum stíl, en þó jafnan bjart yfir, er notið var þar
góðra stunda. Þá var og Kollafjarðarnes í tíð séra Jóns sann-
kallað heimkynni söngmennta héraðsins, og átti kona hans og
börn þeirra þar ríkan hlut að, eins og alkunnugt er.
Börn þeirra hjóna eru: Ragnheiður gift Skeggja Samúels-
syni járnsmíðameistara í Reykjavík, Hjálmar fyrr bóndi á
Felli, nú á Akranesi, Brandur skólastjóri i Reykjavík, Magnús
söngstjóri á Akranesi, Matthías kennari s. st., Valgerður gift
Guðmundi Eiríkssyni frá Dröngum, Guðbjörg gift Páli Theó-