Kirkjuritið - 01.03.1959, Síða 7

Kirkjuritið - 01.03.1959, Síða 7
KIRKJURITIÐ 101 ingar um það, hvemig því lífi er hagað. Og hann getur gefið skýringar á samhenginu milli þess lífs og jarðlífsins." Það er alkunnugt af ritum Þórbergs Þórðarsonar, að honum hefir löngum verið í nöp við kirkjuna, án þess að ég minnist að hafa séð hann gera grein fyrir því, hvernig á því standi. Tónninn bendir til einhverra persónulegra sárinda eða von- svika. Ég veit ekkert um það. Hitt veit ég, að það er einn rit- höfundarkostur hans að taka munninn fullan um það, sem honum þóknast að lofa eða lasta. Og hann hefir heldur aldrei dregið dul á, að hann telur sig einn af stærri spámönnunum, — en ekki meðal hinna smærri. Samt dettur mér ekki í hug að dæma þessi ofangreindu ummæli hans „freyðandi kjaftæði“, svo að ég noti hans eigin orð. Það er sjálfsagt, að menn taki þau til vandlegrar íhugunar og hallist síðan hér sem endra- nær að því, sem þeir telja réttast. Mér finnst, að þetta séu svo mikil orð, að það þurfi ofur- menni til að standa við þau. Höfundur telur sig hafinn yfir öll trúarbrögð og þá að sjálfsögðu alla trúarbragðahöfunda, hvort heldur er Krist eða Búddha, svo að einhverjir séu tilnefndir. Þau „binda menn í dogmur og færa í fjötra“, hann Þ. Þ. kann hins vegar að leysa hnútana með því „að skilja sjálfan sig og hfið til hlítar“ hjálparlaust af sjálfum sér, að því er bezt verð- ur séð. Þá mun margur ætla hann ofvita, — og vera má líka, að svo sé. En hitt er galli, að Þórbergur virðist alls ekki vera hlutlaus í garð kirkjunnar, eins og ég vék áður að. Og hlut- drægir dómar eru jafnan varhugaverðir, — löngum léttvægir. Og hvaða rök færir hann fyrir því, er hann segir, að það sé ,,hafið yfir allar efasemdir, að hún (þ. e. kirkjan) hefir unnið meira skemmdarverk á sálum manna en nokkur önnur stofnun í heiminunT'. Ég sé hvergi röksemdirnar, og virðist samt ærin ástæða til að negla þetta betur, svo að það haldi. Við skulum aðeins líta til okkar eigin sögu. Það er staðreynd, sem enginn heilvita maður getur neitað, að næstum frá öndverðu hefir kirkjan mótað meira íslenzka menningu og eflt betur andleg af- rek hérlendis en nokkurt annað andlegt áhrifavald. Æðri sem ]ægri menningarmál voru lengst af í höndum kirkjunnar. Sagn- ritun vor á að miklu leyti rætur til hennar að rekja, svo að ekki sé meira sagt. Er allt, sem þessu tilheyrir og annað gott, sem kirkjan hefir stuðlað að: áhrif hennar í líknarmálum, hlutur

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.