Kirkjuritið - 01.03.1959, Blaðsíða 17
KIRKJURITIÐ
111
með fögnuði á móti þessu hvetjandi orði: „Vakið, standið stöð-
ugir í trúnni, verið karlmannlegir, verið styrkir. Allt hjá yður
sé í kærleika gjört.“
Ef æskan hlýðir þessu orði, mun áreiðanlega birta yfir ís-
landi.
Bj. J.
Kirkjuráðsfundir
hafa verið haldnir 22. og 29. október, 6. nóv. og 19.—21. janúar.
Biskup er sjálfkjörinn forseti Kirkjuráðs, en hinir 4 í því eru
nú kosnir af Kirkjuþingi. Þeir eru: Gísli Sveinsson, varaforseti
ráðsins, séra Jón Þorvarðsson, séra Þorgrímur Sigurðsson og
Þórarinn Þórarinsson skólastjóri.
Kirkjuráðið féllst einróma á meðmæli Kirkjuþings með frum-
varpi á Alþingi um breytingu á biskupskosningarlögunum í þá
átt að hækka embættisaldur biskups upp í 75 ár, er % hlutar
Presta eða fleiri æsktu þess.
Samþykkt var að leita álits safnaðarfunda og héraðsfunda
á því, hvort hækka skuli kirkjugjald lítið eitt og gangi hækk-
unin til myndunar starfssjóðs Þjóðkirkjunnar.
Ákveðið var að fara þess á leit við fræðslumálastjórnina,
nð kennsla í kristnum fræðum verði ekki minni en tvær stund-
ir á viku í 1. og 2. bekk gagnfræðastigsins.
Kirkjuráðið tók til athugunar fjárlagafrumvarp það, sem
fyrir Alþingi liggur, varðandi fjárveitingar til kirkjumála.
Lagði ráðið áherzlu á það, að framlag til Kirkjubyggingarsjóðs
hækkaði upp í 1000000 kr., til byggingar á prestssetrum upp í
2500000 kr. og til útihúsa á prestssetrum í 88000 kr.
Á síðasta fundi Kirkjuráðs var staddur húsameistari ríkis-
ins. Var þar samþykkt að æskja þess við kirkjumálastjórnina,
að samkeppni fari fram um uppdrætti smærri kirkna bæði utan
°S innan, ennfremur að fjölgað verði starfsmönnum í skrif-
stofu húsameistara, svo að þar megi vinna meir að kirkju-
ieikningum.