Kirkjuritið - 01.03.1959, Blaðsíða 46

Kirkjuritið - 01.03.1959, Blaðsíða 46
Innlendar frétlir, Séra Jakob Einarsson, prestur og prófastur á Hofi í Vopnafirði, hefir fengið lausn frá embætti frá næstu fardögum að telja. Hefir hann verið prestur frá 1917 og prófastur frá 1929. Séra Þorvaröur Þormar prestur í Laufási hefir fengið lausn frá embætti frá sama tíma. Hann hefir verið px-estur í 35 ár. Frú Anna GuÖrún Þorkelsdóttir, ekkja séra Guðmundar Einars- sonar prófasts á Mosfelli, andaðist 13. mai'z, 83 ára að aldri. Frú AuÖur Gísladóttir, ekkja Árna prófasts Jónssonar á Skútu- stöðum, varð níræð 1. marz. Embœttispófi í guöfrœöi luku um miðjan vetur þessir menn: Frank Halldórsson, Jón Sveinbjörnsson og Matthías Frímannsson. LeiÖréttingar. 1 greininni Palestínuför eru þessar prentvillur: Á bls. 444 stendur: Hic de virgine Maria Jesus Christus est, á að vera: Hic de virgine Maria Jesus Christus natus est. Á bls. 446 stendur: Það er nú baðstaður og ferðamannabær, á að vera: Þar er nú bað- staður o. s. frv. Á bls. 448 stendur: blessandi, bjartur vitinn á Karmel, á auðvitað að vera: blossandi, bjartur o. s. frv. MeÖhjdlpari í 50 dr. Nú í febrúar voru liðin fimmtíu ár frá því er Magnús Kristjánsson smiður varð meðhjálpari i Ólafsvíkurkirkju. 1 tilefni þess afmælis ávarpaði sóknarpresturinn, séx-a Magnús Guð- mundsson, meðhjálparanum við guðsþjónustu. Þakkaði presturinn Magnúsi starf í þágu kirkjunnar og safnaðarins og minntist þess jafnframt, að hann hefði starfað lengst allra í sóknarnefnd kirkj- unnar, en Magnús var formaður hennar í 19 ár. Sóknarpresturinn afhenti Magnúsi sem gjöf frá söfnuðinum gestabók, með skrautrit- uðu ávarpi, og tilkynnti, að síðar mundi honum verða afhentur út- skoi'inn göngustafur. Magnús Kristjánsson er 83 ára að aldri. Gjöf frd Borgfiröingafélaginu. Nýkomnar eru til landsins tvær stórar og hljómfagrar klukkur, sem Borgfirðingafélagið gefur Hall- grímskirkju í Saurbæ. Næsta þing Lúterska heimssambandsins. Undirbúningur undir næsta þing Lúterska heimssambandsins er þegar hafinn. Það á að halda í Helsingfors árið 1963. Framkvæmdastjóri Heimssambandsins hefir þegar verið í Finnlandi, en aðal forustumaður samtakanna þar nú er Martti Simojoki biskup.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.