Kirkjuritið - 01.03.1959, Blaðsíða 23
KIRKJURITIÐ
117
loka við góðan orðstír, og prófastur í Múlaþingi 1591—1609, en
jafnframt officialis í Austfjörðum. Hélt hann og Bjarnarnes-
umboð og reyndist við þá sýslan hinn röggsamasti, enda var
hann hraustmenni, léttur í lund og manna góðgjamastur.
Séra Einar var skáld mikið — höfuðskáld sinnar tíðar hér
á landi — og telur dr. Páll Eggert Ólason, að meira liggi eftir
hann í kveðskap, prentuðum og óprentuðum, en nokkurn ís-
lending annan allt til þessa dags.
Svo kynsæll hefir séra Einar orðið, að fróðir menn líta
svo á, að leitun muni nú orðið á þeim íslendingi, er ekki sé af
honum kominn, ef unnt væri að rekja. Hann var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Margrét Helgadóttir, Eyjólfssonar, dáin
hér í Nesi 1567, 44 ára að aldri. Höfðu þau átt saman 8 böm,
en aðeins 3 þeirra komust til aldurs og mannvirðinga, og var
Oddur biskup eitt þeirra. — Önnur kona séra Einars (1569)
var Ólöf Þórarinsdóttir frá Marðarnúpi í Vatnsdal, Gíslasonar.
Er talið, að Einarsstaðahjón þáverandi, sóknarbörn séra Ein-
ers, Jón Ormsson og Þómnn Gísladóttir, hafi stutt hann kröft-
uglega til þessa kvonfangs, en Ólöf var bróðurdóttir Þórunnar
húsfreyju. Með Ólöfu Þórarinsdóttur átti séra Einar 10 börn.
Komust 9 þeirra til fullorðinsára, en af þeim voru 4 prestar
°g 3 prestskonur. En þau tvö alsystkini Odds biskups, sem upp
komust og áður var getið, var annað prestur, en hitt prest-
kona. Enda hafði svo skipazt árið 1694, að á lífi voru 36 prest-
ar af honum komnir. En þegar við andlát hans vom börn hans
°g niðjar orðin 90 að tölu.
í ævikvæði sínu segir séra Einar meðal annars, er hann minn-
ist á ætt sína:
„Um ætt Finnboga / einn karl spáði,
að frábæra mundi / fátækt líða,
unz eik sú hin gamla Einars félli,
en í fjórða lið öll við réttast."
hótti sú spá hafa rætzt.
Daði Níelsson fróði tilfærir svofellda lýsingu af síðustu ævi-
stundum séra Einars:
„Hann var jafnan heilsugóður, og þó hann tæki sér kapellán
á sínum seinustu árum, messaði hann síðasta sunnudag, sem
hann lifði, þótt blindur væri, og sakramentaði son sinn, séra
Höskuld, og margt fólk annað; gerði ráð fyrir burtför sinni,