Kirkjuritið - 01.11.1962, Blaðsíða 15

Kirkjuritið - 01.11.1962, Blaðsíða 15
KIRKJURITiÐ 397 heyrði ekki í lienni og að í þann tíð óx einmanaleiki bæði trúaðra og vantrúaðra að sama skapi og aftökurnar margföld- uðnst með liverjum deginuin, sem leið. Mér hefur verið skýrt frá því síðar, að fordæmingin hafi verið kveðin upp. En að það liafi verið í páfabréfsstíl, sem er næsta óljós. Fordæmingin var sem sé kveðin upp, en menn skildu hana ekki! Hver finnur ekki, hvað sannarleg fordæm- ing var í þessu tilviki, eða dylst, að þetta dæmi felur að nokkru í sér svarið, ef ekki fullt svar, við þeirri spurningu, er þér beinið til mín. Það sem heimurinn býst við af kristn- um mönnum er, að þeir, sem kristnir eru, leysi hátt og skýrt frá skjóðuimi, og lýsi fordæmingu sinni á þann veg, að þar sé ekkert um að villast, ekki skuggi af efa í liuga hins fá- fróðasta, livað þá annarra. Að þeir snúi baki við öllum bolla- leggingum og liorfist í augu við hina blóðstokknu ásýnd sam- tíðarinnar. Oss vantar flokk, sem er ákveðinn í að skera ekki utan af hlutunum og skorast ekki undan ábyrgðinni. Þegar spánskur biskup lýsir blessun sinni á pólitískum aftökum, þá er hann ekki lengur biskup eða kristinn maður, já, ekki einu sinni maður: liann er sami hundinginn og sá, sem í krafti ákveðinna skoðana fyrirskipar slíkar aftökur, án þess að inna sjálfur skítverkið af liöndum. Ég er einn af þeim, sem bíða þess enn, að upp rísi flokkur allra þeirra, sem neita að vera hundingjar og eru reiðubúnir að gjalda það, sem það kostar, að maðurinn geti orðið annað og meira en liundur. Þá kem ég að þessu: Hvað geta kristnir menn gert fyrir oss? Byrjið á því að binda endi á allar innantómar deilur og þá fyrst og fremst naggið út af bölsýninni. Ég held til dæmis að Gabriel Marcel væri ráðlegast að gefa upp á bátinn vissar hugmyndir, sem hann er lieillaður af og hafa leitt liann á villi- götur. Marcel getur ekki kallað sig lýðræðissinna og samtímis krafizt þess, að leikrit Sartre sé bannað. Slík afstaða er liverj- uni manni erfið. Marcel leggur sem sé liug á að verja eilíf lífs- gildi, svo sem siðprýði og guðleg sannindi mannsins, þegar allt veltur á að vemda nokkur bráðabirgðargildi, sem leiða til þess, að Marcel geti einn góðan veðurdag lialdið með liægu nióti áfram baráttu sinni fyrir þessum eilífu gildum ... Og svo ennfremur þetta: Með hvaða rétti getur kristinn mað-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.