Kirkjuritið - 01.11.1962, Side 19

Kirkjuritið - 01.11.1962, Side 19
KIRKJURITIÐ 401 Þennan agnúann ætti raunar að sníða af með afnámi auka- verkagreiðslnanna í þeirra núverandi mynd, eins og vikið hef- ur verið að liér áður, og það oftar en einu sinni. Erlend reynzla bendir liins vegar ótvírætt til þess að ein- mennings prestaköllin séu æskilegust, ef unnt er að lialda þeim uppi. Þar hafa löngum starfað margir prestar við hinar stóru höfuðkirkjur og liefur það að vísu sína kosti, þegar samstarf þeirra er með ágætum. En mönnum dylst samt ekki, að ein- mitt nú er ekki tími hinna miklu kirkjubákna og risastóru safnaða. Atliuganir manna, bæði á Nnorðurlöndum og í Amer- íku, leiða í ljós, að einstakir prestar í liæfilega stórum söfnuð- um njóta sín bezt og hafa mest áhrif. Með því móti kynnast prestarnir tiltölulega bezt söfnuðum sínum og geta orðið rétt- nefndari sálnahirðar en ella. Þá þykir og sannað, að þrátt fyrir alla strætisvagna og bíla- kost megi ekki fólk eiga of langt til kirkjunnar. Það sé heppi- legast að kirkjan sé miðdepill í fremur smáu hverfi. Annars venjast þeir af að sækja hana, sem lengra eiga að fara og meiri tínia verða að eyða í það. Þetta og margt fleira er oss skylt að yfirvega nú, þegar höf- uðstaðurinn þarfnast mikillar prestafjölgunar. Hér, sem ann- ars staðar skal það vel vanda, sem mikið ríður á og lengi á að standa. Hagur kirkjunnar er að sjálfsögðu sá, að hver prestur hafi sem bezt starfsskilyrði til þess að þjóna sem flestum eins vel og lionum er unnt. Sérstœtt dœmi 1 sambandi við það, sem segir hér að framan, þykir mér rétt að geta um nokkra nýlundu í safnaðarinálum, sem á sér stað 1 Englandi. Spölkorn norður af Lundúnum er risin upp smá- horg, sem heitir Stevenage. Þar búa nú 45 þúsund manns, eu áætlað að íbúarnir verði 60 þúsundir, eða jafnvel 80, innan fárra ára. Bænum er skipt í einingar, þannig að sem næst 10 þúsund manns eru í hverju hverfi. Öll borgin er eitt presta- hall. En kirkjurnar eru þegar sjö og sóknarpresturinn hefur sjö presta sér til aðstoðar. Allir prestarnir koma vikulega saman. Ganga fyrst til aharis, en snæða síðan morgunverð og skipuleggja þá starfið Klrklurltis — 26

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.