Kirkjuritið - 01.11.1962, Blaðsíða 20

Kirkjuritið - 01.11.1962, Blaðsíða 20
KIRKJURITIÐ 402 næstu daga. Þá er ráðið hvar og hvemig liver á sérstaklega að vinna. Tekið er tillit til þess, hvað hverjum lientar bezt, t. d. livort liann er einkum vel fallinn til æskulýðsstarfsemi eða sjúkravitjana, almennra prestsstarfa o. s. frv. Ellefu manna leikmannaráð, sem byggt er á nokkurs konar kirkjunefndum, hefur einnig hönd í bagga með allri kirkjustarfseminni. Eins konar húsvitjanir bæði presta og leikmanna eru eitt af því, sem mikil rækt er lögð við í þeim tilgangi að draga fólk að kirkjunum og stofna til kunningsskapar innan liverfanna. Sá kostur þessa skipulags liggur í augum uppi, að eining kirkjustarfsins verður auðsæ og margar hendur og hugir eru þarna samtengd til sameiginlegra átaka. Jafnhliða miðað að því, að liver starfsmaður njóti sinnar sérhæfni. Þess vegna er oss einnig skylt að gefa þessu gaum. Ekkert er meira aðkallandi innan kirkjunnar í dag en endurvakning safnaðarstarfsins. Hver mun færasta leiðin — það er spurn- ingin. Ungt fólk þarf til aS ávinna ungt fólk Æskulífið er endurspeglun lífernis fullorðna fólksins. En eins og gengur er sá sjaldan betri, sem eftir liermir. Oss ætti því að vera það eingöngu liarms- en ekki ásökunarefni, að sja hversu syndir vor feðranna koma nú sem áður geypilega niður a börnunum á sumum sviðum. Að þessu sinni skal aðeins bent á eitt atriði varðandi æsku- lýðsvandamálin. Oss virðist fæstum nægilega ljóst, liversu ver — hin eldri kynslóð — eigum óhægt með að kippa því í liS- inn, sem aflaga fer, vegna þess að unglingamir sjá ekki að ver liöfum rétt til að banna þeim, það, sem vér fremjum sjálfir- Né skilja þeir, hvers vegna þeir eiga að feta þær leiðir, sem ver forðumst að stíga fæti á. Þess vegna er von, að þeir t. d. fal löngun til að sjá þær kvikmyndir, sem fullorðna fólkið sækir bezt — þótt þær séu „bannaðar bömum“. Og engin undur, þott bömin sæki ekki þær samkomur, svo sem guðsþjónustur, sem foreldrararnir forðast eins og heitan eldinn. Vér þurfum að skilja, að forystumenn endurbótanna verða að koma úr röðum æskunnar sjálfrar. Það bezta, sem vér get- um gert, er að leita uppi unglinga, sem ekki hafa slitnað upp

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.