Kirkjuritið - 01.11.1962, Síða 28
410
KIRKJURITIÐ
nægjandi. Það er tvímælalaust rétt stefna, sem tekin hefur
verið hin síðari árin að reisa safnaðarheimili í sambandi við
kirkjunnar, a. m. k. í þéttbýli. Ef kirkjan ætlar að sinna lilut-
verki sínu fyrir hina uppvaxandi kynslóð, þá verður hún að
vera í æ ríkari mæli lieimili fyrir hina stóm fjölskyldu Guðs
barna, þar sem menn finna, að þeir eni velkomnir, ekki að-
eins til messunnar á sunnudögum, heldur oft endranær. Ekki
má þó líta svo á, að kirkjan komi í stað heimilanna, heldur
er kirkjan byggð upp af heimilum. Hvert lieimili á að vera
eins og sella í líkama liinnar stóru fjölskyldu kirkjunnar. Hjá
hinni kristnu fjölskyldu logar arineldur kristindómsins meðal
hverrar kynslóðai. En hin kristna fjölskylda lifir ekki einangr-
uð, lieldur í samfélagi annarra kristinna fjölskyldna og ein-
staklinga í kirkjunni. Það er falleg sjón að sjá fólk koma til
kirkjunnar á helgum dögum. Og ekki viljum vér láta böm og
unglinga vanta í þann lióp. Það er kannski erfitt að koma því
við í sveitunum, að fjölskyldan komi saman til messunnar,
en slíkt er auðvitað æskilegt. Snemma ætti að byrja á því að
venja börnin við kirkjuferðir. Ekki fer vel á því, að þau séu
ein síns liðs, eins og stnndum á sér stað, a. m. k. í þéttbýli,
því að þau gætu valdið tmflun í kirkjunni. Ef lítil börn valda
truflun í messu, á að fara með þau út, en slíkt heyrir til undan-
tekninga og fer fljótt af.
Vér helgum ýmsa sunnudaga sérstökum stéttum og málefn-
um, svo sem sjómannadag, æskidýðsdag og biblíudag, en vér
þyrftum að hafa ákveðinn sunnudag á liverju ári, sem kalla
mætti sunnudag fjölskyldunnar eða sunnudag lieimilanna til
að minna fjölskylduna á að koma í kirkju saman. Kirkjan á
Indlandi heldur dag hins kristna heimilis hátíðlegan á þennan
hátt: Kristnar fjölskyldur fara til kirkjunnar, þegar dimmt
er orðið og bíða þar í myrkrinu, þannig að liver fjölskylda
situr út af fyrir 6Íg, þangað til allir eru komnir. Þá er kveikt
ljós á altarinu, en það er ímynd Krists, sem er Ijós heimsins.
Hinir kristnu lofa Guð sameiginlega fyrir ljósið, sem liann
hefur veitt þeim í Kristi, og biðja fyrir heimilunum og kirkj-
unni. Þegar messunni er lokið, kveikir liver fjölskyldufaðir á
litlum lampa við Ijós Krists á altarinu. Síðan ganga allir liinir
kristnu syngjandi í helgigöngu til liins fyrsta kristna lieim-
ilis. Heimilisfaðirinn fer inn og kveikir í skyndi á kertum um