Kirkjuritið - 01.11.1962, Page 39

Kirkjuritið - 01.11.1962, Page 39
Clfur Ragnarsson: Vísindin um veginn „Steinninn, sem smiðirnir höfnuðu, sd hinn sami er orðinn að hyrningarsteini". Haustið 1960 dvaldist ég um skeið í Ziirich, í því skyni að kynna mér sálfræði þá, sem oftast er kennd við svissneska sálfræðinginn dr. Jung. Því miður gafst mér ekki færi á að hitta hann sjálfan, vegna þess að liann var þá sjúklingur. Áhugi minn á þessum efnum var m. a. af því sprottinn, að mér virtist svo sem þarna væri á ferðinni vísindaleg lausn á því vanda- máli, sem veröldin á við að stríða vegna þess, að hjartað hefur orðið viðskila við heilann, brjóstvitið dottið úr sambandi við höfuðvitið. Þetta kemur fram í því, að höfuðið verður fullt af ís, þó að lijartað sé fullt af eldi. Þetta virtist þeim vitra manni, Ben Gúrion einkenna Islendinga. Þeir eru þjóð elds og ísa, dýrka ísinn, þegar þeir eru allsgáðir, en eldinn þegar þeir eru fullir. Þeir liafa tiltölulega skynsamlega ástæðu til að drekka sig fulla og liaga sér eins og fífl öðru livoru. Það forðar þeim frá því að frjósa í hel og drepa sjálfa sig og aðra úr leiðindum. Samt er þarna engin raunveruleg lausn á vandamálinu. Það yar sem sagt skynsamleg lausn á þessum vanda, sem ég var á hnotskóg eftir suður í Sviss. Trúarbrögðin hafa að vísu ætíð lialdið því fram, að lausnin væri í höndum þeirra, og það mun satt vera að vissu marki. En ísfull liöfuð eru ekki betri en ís- fullir firðir. Isiim lokar lífsbjörgina úti. Meginþættir mannlegrar vitundar eru tveir: innsæi og greind. Innsæið finnur á sér, skynjar beint. Það veit og það trúir, en getur ekki ætíð fundið rökin fyrir vitneskju sinni og trú. Þeg- ar efinn spyr: Hvers vegna? nægir lionum ekki svarið: „Það hara er svona“, enda vill reynast stopult að treysta innsæinu einu saman, ef greindin er ekki með í förinni. Það er greind- ln, sem sundurgreinir og leitar að rökrænu samliengi í öllu.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.