Kirkjuritið - 01.11.1962, Síða 44

Kirkjuritið - 01.11.1962, Síða 44
426 KIRKJURITIÐ gengið til móts við óskir, sem virðast vera all-almennar nú. 2) Hinu erfiða húsmæðranámi er deilt niður á tvo vetur, og yrði liinum ungu stúlkum því síður ofgert með líkamsvinnu. 3) Jafnframt liúsmæðranáminu gefst tóm til að sinna nokkr- um námsgreinum gagnfræðastigsins og leggja áherzlu á kristi- leg og þjóðleg fræði, þar á meðal bókmenntir. Aðsókn að skólanum í þessu nýja formi var meiri en svo að unnt væri að fullnægja öllum umsóknum, og varð að neita all-mörgum um skólavist. Af lieilsufarsástæðum liefur frk. Ingibjörg ákveðið að taka sér frí frá störfum um eins árs skeið, og hefur frk. Lilja Krist- jánsdóttir verið sett forstöðukona skólans þetta skólaár. Auk hennar verða kennarar í vetur: Björg Jóhannesdóttir, kennir saum, Jóhanna Björnsdóttir, matreiðslukennari og Ingrid Holmgárd, sænskur vefnaðarkennari. Skólasetning fór fram að Löngumýri sunnudaginn 14. októ- ber s.l. að viðstöddum nemendum og gestum. Var setningarathöfnin hin hátíðlegasta með sálmasöng og ræðuhöldum. Ræður fluttu: Frk. Ingibjörg Jóliannsdóttir, Jó- hann Salberg Guðmundsson, sýslumaður Skagfirðinga, og séra Ingólfur Ástmarsson, biskupsritari. Hinn nýi skólastjóri, Lilja Kristjánsdóttir, flutti setningar- ræðuna, ávarpaði nemendur og sagði skólann settan. Allir viðstaddir nutu ánægjulegrar samverustundar við góð- ar veitingar. Skólanefnd skipa: Frk. Ingibjörg Jóhannsdóttir, Jóhann Sal- herg Guðmundsson, sýslumaður, og séra Ingólfur Ástmarsson, biskupsritari, sem er formaður nefndarinnar. Allt, sem ég hef séð, knýr mig til að treysta skaparanum í öllu því, sem ég hef ekki séð. — Emerson. Blóm eru orð, sem jafnvel börnin geta skilið. — Coxe. & Þroskuðustu ávextirnir falla fyrstir. — Shapespeare.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.