Kirkjuritið - 01.11.1962, Síða 49
KIRKJURITIÐ
431
Kirkju er fyrst getið að Setbergi í skrá Páls biskups lónssonar frá því
uin 1200 uni kirkjur þær í Skálholtsbiskupdæmi, sem presta þarf til. Lengi
voru tvær kirkjur í Eyrarsveit, og var önnur á Öndverðareyri, síðar Hall-
bjarnareyri, en sú kirkja var lögð niður 1563. Síðan befur Setbergskirkja
verið eina sóknarkirkjan í Eyrarsveit. Nú er í byggingu ný kirkja í Graf-
arnesi fyrir botni Grundarfjarðar, og er sú kirkja orðin fokheld.
Kirkjan, sem nú er á Setbergi, var reist 1892, af þáverandi 6Óknarpresti,
séra Jens V. Hjaltalín. Hún var vigð af héraðsprófastinum, séra Eiríki
Kúld, 16. október um haustið. Kirkjan er lítil og turnlaus, en injög við-
kunnanlegt guðshús, og liefur verið vel viðhaldið. Nú síðast hefur hún
hlotið allmikla aðgerð fyrir sjötugs afmælið.
1 8Óknarnefnd Setbergskirkju eru nú Finnur Sveinbjörnsson Grafarnesi,
sem hefur verið formaður sóknarnefndar í 37 ár, Gunnar Guðmundsson,
Akurtröðum og Kristján Jónsson, Eiði.
Magnús GuSmundsson, Setbergi.
Héraðsfundur Húnavatnsprójastdœmis. — Sunnudaginn 30. septeniber
var héraðsfundur Húnavatnsprófastdæmis haldinn í Hólaneskirkju á Skaga-
strönd. — Hófst hann með messugjörð. Fyrir altari þjónaði séra Pétur
Ingjaldsson á Höskuldsstöðum, en predikun flutti séra Jón Kr. ísfeld, prest-
ur í Æsustaðaprestakalli. Söngflokkur kirkjunnar, undir stjórn Páls Jóns-
sonar skólastjóra, söng.
Sex prestar sóttu fundinn og sex safnaðarfulltrúar, auk annarra kirkju-
gesta.
Að lokinni messugjörð flutti prófastur séra Þorsteinn B. Gíslason í
Steinnesi, yfirlitsræðu um kirkjulega atburði.
Minntist hann auk látinna presta, þeirra Björns Björnssonar á Hvamms-
tanga, er um langt skeið var kirkju-organleikari og mikill áhugainaður um
safnaðarsöng, einnig safnaðarfulltrúi um fjölda ára.
Björns Rögnvaldssonar, er um langt árabil var eftirlitsmaður prests-
setra, og minntist velvilja lians í þágu stéttarinnar.
Eitt prestakall er laust, Breiðabólstaður í Vestur-liópi.
Smíði nýrrar kirkju má segja lokið á Höskuldsstöðuin og gagnger við-
gerð á kirkjunni á Breiðabólastað í Vestur-hópi er að hefjast.
Kirkjukórainót var haldið 1. apríl á Blönduósi og var fjölsótt, og þótti
vel takast. Stjórnaði því Kjartan Jóhannesson frá Stóra-Núpi, er undanfarna
vetur hefur haldið námskeið með kirkjukórum í Húnaþingi.
Að lokinni ræðu prófasts flutti séra Jón Kr. ísfeld erindi, er haiiu nefndi:
Sanistarf presta og safnaða. Var það erindi hið bezta, góð hugvekja um
þjóðlífið og safnaðarlíf nú á dögum. Urðu um erindið umræður..
Þá vakti prófastur máls á því, livort tímabært væri eigi að hafa kirkju-
^ega í kauptúnum Húnaþings, er helgaðir væru kristindómsmálum. Var
samþykkt að reyna það á komandi vetri, og nefnd kosin því til fram-
gangs. í fundarlok flutti prófastur hugleiðingu og bæn. Fundarmenn þágu
síðdegiskaffi í boði sóknarnefndar Hólanesskirkju og kvöldverð á Hö-
skuldsstöðum í boði prestshjónanna. — P. J.