Kirkjuritið - 01.02.1964, Blaðsíða 26
72
KIRKJURITIÐ
Mannleg sál skal þekking þrá
jiar til sólin fjarlægð eyðir —
unz vors lmgar rök og ráð
rata allar liimins leiðir.
Ennfremur:
Hjarta í fjölda, lijarta eitt,
hvergi án trúar á þó neitt ....
NauSsynlegur undirbúningur
Islenzkt sjónvarp lilýtur nú að vera á næstu grösum. Um
Jiað ber öllum saman, emla yfirlýst af útvarpsstjóra:
Það þarfnast margvíslegs undirbúnings margra aðila. Einn-
ig kirkjunnar. Erlend reynzla sannar að vandi hennar vex með
tilkomu þess. Það opnar lienni nýtt verksvið. Færir henni ný
tækifæri upp í liendurnar. En þau tækifæri eru vandmeðfar-
in. Til þess þarf lærdóm og leikni að útkoman verði ekki nei-
kvæð. Islenzkir prestar hafa flestir aðeins séð sjónvarp í svip.
Sumir ekki enn lítið það augum. Enginn Jjeirra mun liafa
hirzt þar á sjónfletinum, nema þá í hópsýningum.
Yér Jjurfum að læra að messa í sjónvarpi og tala þar til fólks
á öllum aldri, hvað’ J)á að standa fyrir sérstökum sjónvarps-
þáttum, kristilegs efnis.
Fyrir þessu verður að hugsa nú Jiegar.
Rannsókna þörf
Það er annars næstum eins og vér Islendingar liöldum oss
á stundum fædda með alla þekkingu og einfæra til hvers, sem
vér viljum leggja liönd að. Vér höfum gjörbylt öllu að kalla
í þjóðfélaginu undanfarið, án þess að prófa oss verulega áfram
í mörgu. Ég tek liér aðeins byggingariðnaðinn til dæmis. Þar
liafa orðið mörg herfileg mistök og stórfelld fjárútlát sakir
vanþekkingar og öpunar og skorts á rannsóknum og fyrirsögn
þeirra manna, sem átt liefðu að segja til vegar og vara við
vítunum.
Ég gleymi aldrei steinsteyptri hlöðu, sem framfarasinnaður
bóndi reisti fyrir mörgum árum á jörð sinni. Slíkar lilöður
voru J)á að hyrja að ryðja sér til rúms og áttu að vera ævar-