Kirkjuritið - 01.02.1968, Blaðsíða 7
KIRKJURITIÐ 53
að storknaðri dauSagrímu. Þá tekur skaparinn aftur til sinna
ráða.
Hvers vegna fer tíminn svona með oss?
Það er vegna þess, að vér kunnum ekki að lifa og láta
hverjum degi nægja sína þjáningu. Vér trúum lítið á Guð, og
þess vegna nagar óttinn hjartarætur vorar, unz mannlegar
tilfinningar deyja út. Vér óttumst um afkomu vora og þess
Vegna reynum vér að skáka hver öðrum með kænsku og klók-
skap. Vér heyjum orrustu um veraldargæðin, hugsum um
°ss sjálf en lítið um aðra. Það er þess vegna sem vér
verðum þröngsýn og smásálarleg og týnum allri gleði xit úr
l'Öndunum á oss.
^ér hugsum of mikið um að komast áfram sem kallað er,
troða sjálfum oss fram fyrir aðra, en til þess þurfum vér
vera óliæfilega eigingjörn. Þetta eilífa kapphlaup um að
k°niast áfram til auðs og valda, sem livarvetna verður vart
1 þjóðfélögunum: Stafar það í raun og veru af nokkru öðru
en því að oss þykir vænna um oss sjálf en náungann?
^ér notum hvert tækifæri sem gefst til að ýta lionum til hlið-
ar en sjálfum oss fram. Með öðrum orðum: Metnaðargirndin er
öreinræktuð sjálfselska og kaldrifjað hatur til annarra.
Ekki er að undra, þótt mennirnir verði að steini, og veröld-
ln engist í styrjöld og lirellingum.
E/sfca útrekur óttann
Eetur lífið ekki orðið öðruvísi og miklu skemmtilegra? Jú,
ef vér lærum að deyja daglega, sem þýðir að lifa eilífu lífi
ln,tt í hverfleika tímans. Hvernig getum vér þá stigið frá
öauðanum yfir til lífsins?
Með því að hafa augun og eyrun opin fyrir undrum tilver-
"unar kringum oss. Með því að glata ekki tilfinningunni fyrir
Pvi, sem fagurt er og yndislegt. Með því að trúa á Guð og láta
ekki óttann gera oss að verri mönnum.
Vér eigum að óttast það eitt að breyta á móti betri vitund.
eiIu sem Guð elskar samverkar allt til góðs. Þegar um það
er rætt hvort guðstrúin hafi nokkra þýðingu, þá skiptir það
Pessu niáli, að þeir sem trúa á Guð — og hér á ég ekki við
Pa sem einungis ímynda sér að þeir trúi á Guð, lieldur þá,
seiu gera þag - raun Q„ veru — óttast ekkert, ekki einu sinni