Kirkjuritið - 01.02.1968, Page 50
96
KIRKJURIIIB
af stól, eins og allar athafnir í Hóladónikirkju, var þessi ekki sízt liátíð-
Ieg, þar fór allt saman, virð'uleg atliöfn fyrir altari og af stól.
Söngur Kirkjukórs Sauð'árkróks undir stjórn tónskáldsins Eyþórs Stef-
ánssonar með ágætum fluttur.
I fyrsta sinn var þarna flutt stólvers, Da nohis paceni, eftir Eyþór
Stefánsson tónskáld, tileinkað Jóni hiskupi Ögmundssyni hinum helga. Ég
Iield að allir hafi orðið hrifnir af flutningi kórsins og stjórn tónskáldsinS
á þessu tónverki. Guð'rún dóttir Eyþórs Stefánssonar aðstoðaði við' stjórn
kórsins.
Að lokinni kirkjuathöfn var einnar klukkustundar hlé sem gestir not-
uðu til að fá sér hressingu lieima á staðnum.
Þá var liringt til samkomu í dómkirkjunni. Flulti formaður Hólafélags-
ins, Þórir Stephensen, þá ávarp en Steindór Steindórsson, settur skóla-
meistari, flutti snjallt erindi um Jón biskup Ögmundsson hinn helga, þanu
þátt er biskupinn átti í að gera Hóla að andlegri og veraldlegri miðstöð,
þar sem fólkið flykktist lieim á staðinn til að hlíða á lielgar tíðir og svo
fagran söng að jafnvel erlendunt kirkjuhöfðingjum þótti unun á að hlýða.
Einnig mun Jón biskup helgi hafa fyrstur manna liafiö reglulegt skóla-
hald á Islandi, hliðstætt því sem gerðist í öðrum siðmenntuðum löndum-
Er því varla hægt að gera sér grein fyrir hve mikla þýðingu störf biskups
höfðu fyrir land og lýð.
Eftir ræð'u skólameistara flutti séra Pétur Sigurgeirsson, Akureyri,
ávarp og hæn. Séra Þórir Stepliensen þakkaði veitta aðstoð’ við Hólafélag-
ið þennan dag. Hann skýrði tilgang félagsins sein var stofnað fyrir 3 áruni
í þeim tilgangi að' efla og styrkja andlegan og veraldlegan viðgang Hóla,
fá fólkið', til að koma á Iiina árlegu Hólaliátíð og styðja öll þau mál er
staðnum verð'a til góðs. Að' endingu sungu allir kirkjugestir sálma og
þjóðsönginn áður en gengið var úr kirkju.
A sama tíma var samkoma í leikfimihúsi Bændaskólans ætluð hörnum
og unglingum. Um hana sáu Jón Bjarman æskulýðsleiðtogi og Júlíus
Júlíusson leikari á Siglufirð'i.
Þessi Hólahátíð fór að' öllu leyti prýðilega fram. Hjálpaðist allt til að
gera daginn ógleymanlegan. — Björn..
Kvenfélag Laugarnessóknar gaf kirkju sinni nýlega skírnarfont sem er
höggvinn úr ítölskum marmara af Jóhaiini Eyfells. Er fonlurinn nieð
kaleikslagi og með látúnsskál eftir Leif Kaldal.
KIRKJURITID 34. árg. — 2. hefti — febrúar 1968
Tímarit gefig út af Prestafélagi U<ands. Kemur út 10 sinnum á ári. Verg kr. 200
Ritstjóri: Gunnar Árnason.
Ritnefnd: Bjarni Sigurösson, Heimir Steinsson,
Pétur Sigurgeirsson, SigurÖur Kristjánsson.
Afgreiöslu annast Ragnhildur ísaksdóttir, Hagamel
Sími 17601.
Prentsmiöja Jóns Helgasonar.