Kirkjuritið - 01.05.1969, Blaðsíða 16
206
KIRKJURITIÐ
þar sem Mannssonurinn gengur um garða með rcidda svipu
og rekur mangara 20th Century-Fox á dyr,
þá, sem gjört hafa bænahús þitt að ræningjabæli.
Drottinn
í þessum syndum spillta og geislavirka heimi
getur þú ekki eingöngu sakfellt smáafgreiðslustúlku,
sem lét sig dreyma um að verða kvikmyndastjarna
eins og gengur og gerist um allar afgreiðslustúlkur,
Draumur hennar rættist (varð að litmyndaveruleika).
Hún fylgdi aðeins handritinu, sem vér fengum henni í hendur —
afkáranlegu handriti vors eigin lífs.
Hana þyrsti eftir kærleika og vér gáfum henni deyfilyf,
til bóta við hryggð hennar yfir því að hún skyldi ekki vera dýrlingur
mæltum vér með því að hún léti sálgreina sig.
Drottinn, minnstu hversu ótti hennar við kvikmyndavélarnar
fór sívaxandi og óbeit hennar á förðuninni — þótt hún einbeitti sér
við að farða sig fyrir hverja sviðsmynd —
minnstu þess hversu ógæfan færðist í aukana
og það varð æ tíðara að hún kæmi of seint í kvikmyndaverið.
Eins og allar afgreiðslustúlkur dreymdi hana um að verða kvikmynda-
stjarna.
Og líf hennar varð óraunverulegt, Iíkt og draumur,
sem sálfræðingurinn bókfærir og skýrgreinir.
Unaðsstundir hennar voru kossar er hún gaf og þáði með luktum augunu
en þegar hún lauk þeim upp
uppgötvaði hún að þetta hafði gerst í Ijóma ljóskastaranna
og að slökkt er á ljóskösturunum
og allir veggirnir liðaðir sundur (voru ekki annað en skreyting)
og kvikmyndastjórinn hverfur á dyr með handritið,
því að kvikmyndun þáttarins er Iokið.
Ferð á skemmtisnekkju, koss í Singapore, dans í Rio,
móttaka á heimili hertogans af Windsor og frúar hans,
allt var þetta upplifun á hennar eigin ömurlega vinnustað.
Kvikmyndin endaði án nokkurs koss í lokin.
Það var komið að henni Iátinni í rúminu með hendina á símanum.
Og Iögreglan hafði enga hugmynd um í hvern hún ætlaði að hringj8-
Það var likast því,
þegar einhver hefur hringt til að heyra raust einkavinarins
og heyrir svo aðeins hlutlausa rödd sem segir:
WRONG NUMBER (skakkt númer)
eða að einhver hefur orðið fyrir glæpamannsárás og teygir út hendina
eftir sima, sem tekinn hefur verið úr sambandi.
Drottinn
hver, sem það kann að hafa verið, sem hún hugsaði sér að hringja í,
og kom ekki í verk (ef til vill var það enginn eða var það einhver, sem
ekki er í símaskrá Los Angeles) svara þú kalli hennar.
G. Á. islenzkaði
Á