Kirkjuritið - 01.07.1970, Page 13
KIRKJURITIÐ
299
sakir stjómmálaástandsins í landinu. Hins vegar var það til
ineðmæla og stuðnings, að þau fjögur allsherjarþing, sem Lút-
herska Heimssambandið hefur liáð, liafa verið í Evrópu (3) og
N.-Ameríku (1). Til greina kom að halda þetta þing í Austur-
Evrópu, en það strandaði á stjórnarvöldum þar eystra. Þá
þótti ráð að leita til „þriðja lieimsins“ og gista einhverja hinna
ungu lúthersku kirkna þar. Ivom svo boð frá lúthersku kirkj-
unni í Brasilíu, en hún er allfjölmenn og hefur vaxið stómm
að undanfömu, liefur hátt á 8. hundrað þúsund meðlimi. Að
öðru leyti er þorri landsmanna rómversk-kaþólskur, eins og
Eunnugt er.
Svo er háttað um stjórnarfar í Brasilíu, að það var engan
yeginn vandalaust að kveðja þar saman alþjóðlegt kirkjuþing.
Þurfti fyrst og fremst að tryggja það, að tilkvaddir fulltrúar
Evaðanæva að fengju að koma til landsins og að engar óeðli-
^egar hömlur væru lagðar á þá. Ferðafrelsi innanlands og ó-
skorað málfrelsi þ ingsins og einstakra fulltrúa hlaut að vera
skilyrði. Virtist svo sem stjórnarvöldin vildu ábyrgjast þetta
°g taka á sig þá áhættu, sem því lilaut að fylgja í þeirra aug-
titn. Því það er ekkert levndarmál, að harðstjórn er við völd
1 landinu og þjóðfélagsástandið skuggalegt. Þó að margt sé á
Euldu um stjórnarliætti, eins og gerist í einræðisríkjum, þá
Eefur ekki verið unnt að hilma yfir lögleysur og ofbeldisverk,
kúgun og pyndingar. Hafa fregnir af þessu borizt út í vaxandi
mælij ekki sízt fyrir atbeina rómverzk-kaþólskra kirkjumanna,
sem eru í opinskárri andstöðu og beinu stríði við stjórnarvöld-
111 og hafa margir sætt liarkalegri meðferð.
Það gat því ekki verið fýsilegt að þiggja aðstöðu til þing-
Ealds í þessu landi, sízt af öllu að gefa stjórninni minnsta til-
efni til að lialda, að umlieiminum væri ókunnugt um misferli
°g kúgun eða léti sér slíkt í léttu rúmi liggja. Samt varð ofan
a? að þingið skyldi haldið í Porto Alegre og munu menn Iiafa
vonað, að það gæti orðið styrkur, ekki aðeins lúthersku kirkj-
llnni, heldur öllum jákvæðum öflum í landinu. En á síðustu
ntánuðum liefur síaukin vitneskja um illa stjórnarliætti vakið
vaxaiuli gagnrýni lútherskra manna víðsvegar, og þar kom, að
ákveöið var að færa þingið til annars lands. Er vonandi, að
þessi mótmælaaðgerð gegn harðstjórn og misrétti verði ekki
ahrifalaus, hvorki í Brasilíu sjálfri né annars staðar.